145. löggjafarþing — 55. fundur,  15. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[20:20]
Horfa

Ásta Guðrún Helgadóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar til að byrja á því að þakka hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni fyrir mjög skelegga og kraftmikla ræðu eins og við var að búast frá þeim hv. þingmanni. Mig langar til að spyrja hv. þingmann, þar sem hann hefur nú setið á þingi jafn lengi og ég hef verið til, um Landspítalann. Mér finnst eins og saga Landspítalans og saga íslenska heilbrigðiskerfisins hafi alla tíð verið sú, síðan ég fæddist alla vega, að það hafi alltaf vantað peninga, það hafi alltaf vantað meira fé. Og ég man að jafnvel á góðæristímunum þá var Landspítalinn að velta því fyrir sér hvernig hann ætti að standa undir rekstri og það var þegar vel áraði, miðað við hvernig hlutirnir gerðust í síðustu ríkisstjórn sem tók við eftir hrun. 2009 var ekkert eðlilegt ár, 2008 var heldur ekki eðlilegt ár. Ég held að það hafi verið ákveðin þjóðarsátt ef svo má segja um að við værum komin í alveg sérstaka stöðu og allir þyrftu að leggjast á eitt, m.a. aldraðir og öryrkjar, og taka á sig skerðingar til að bjarga ríkissjóði, til að bjarga landinu frá beinlínis bankahruni eða gjaldþroti.

Ég spyr hv. þingmann þar sem hann er búinn að vera hér og fylgjast með þessum málum í hátt á þriðja áratug: Hvernig stendur á því að íslenska ríkið hefur ekki á þessum 30 árum staðið betur vörð um Landspítalann en svo að núna flykkjast læknar af landi brott einfaldlega af því að þeir geta fengið betri kjör annars staðar og við bjóðum þeim upp á að vera í lekum húsum þar sem er mygla upp um alla veggi. Ég spyr: Af hverju er ekki búið að halda betur utan um þennan málaflokk?