fjárlög 2016.
Virðulegi forseti. Nú veit ég að hv. þingmaður er mikill áhugamaður um Landspítalann og vill berjast fyrir honum. Í breytingartillögu minni hlutans er kveðið á um 2,1 milljarðs króna aukafjárveitingu, sérstaklega þar sem Landspítalinn virðist vera gersamlega fjársveltur ef svo má að orði komast. Samkvæmt yfirlýsingu frá læknaráði og hjúkrunarráði Landspítalans verja OECD-lönd að meðaltali 0,5% af vergri landsframleiðslu í heilbrigðiskerfi sín. Til samanburðar samsvarar það 10 milljörðum króna á Íslandi en ef miðað er við skandinavísk lönd eru það um það bil 40 milljarðar. Á sama tíma hafa íslensk stjórnvöld samkvæmt þessari skýrslu OECD sem yfirlýsingin frá læknaráði og hjúkrunarráði Landspítalans byggir á einungis varið 0,1% af vergri landsframleiðslu til fjárfestinga í innviðum heilbrigðisþjónustunnar.
Nú veit ég að samkvæmt könnunum sem Píratar hafa gert undanfarin ár árlega virðist vera skýr forgangsröðun meðal Íslendinga um að þeir vilja eyða skattfénu sínu í heilbrigðiskerfið. Þeir vilja eiga gott heilbrigðiskerfi, eiga spítala, eiga heimilislækna sem við getum leitað til. Hvernig stendur á þessari mismunandi forgangsröðun? Ég held að hinn almenni íslenski borgari vilji skandinavískt velferðarkerfi sem er bara ekki í boði hér lengur. Hvernig stendur eiginlega á því?