145. löggjafarþing — 55. fundur,  15. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[21:55]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Illugi Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er einmitt mergurinn málsins að það er tvennt ólíkt, annars vegar að Ríkisútvarpið sé að styðja við fjölmiðla, eins og hv. þingmaður lýsti hér á Norðurlöndum, eða ætla Ríkisútvarpinu að uppfylla lagaskyldu sína með því að etja kappi við aðra fjölmiðla á fjölmiðlamarkaði um tekjur. Þess vegna held ég að það væri bót að því að við reyndum að leggja grunn að frekari stefnumótun almennt um fjölmiðlamarkaðinn.

Ég er sammála þessari tvískiptingu hv. þingmanns á annars vegar menningarhlutverki og hins vegar á fjölmiðlahlutverkið. Þá ber að horfa á það að það er auðvitað gríðarleg fjölgun á fjölmiðlum, hvort sem mönnum finnst þeir góðir eða vondir, það er bara mat hvers og eins hv. þingmanns. Hið augljósa er að þeim hefur fjölgað og fer fjölgandi. Tæknibreytingar gera að verkum að það er auðveldara að fara af stað með fjölmiðla en áður. Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að horfa enn frekar til framtíðar á menningarhlutverk Ríkisútvarpsins, sérstaklega hvað það varðar að framleiða íslenskt efni, meðal annars til þess að beina að börnum, en líka til þess almennt að halda utan um menningararf okkar og nýsköpun á menningarsviðinu.