145. löggjafarþing — 55. fundur,  15. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[22:13]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég er hjartanlega sammála hv. þm. Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur. Við vitum ágæt dæmi þess þar sem einkaaðilar hafa staðið sig mjög vel í því að gefa fólki tækifæri á slíkum störfum. Það er ekki nægjanlega algengt því miður, en maður þekkir mörg góð dæmi þess og að sjálfsögðu ætti hið opinbera að ganga á undan með góðu fordæmi í þessum efnum. Það væri hægt að gera með stefnumarkandi ákvörðun hér á þingi. Það væri vissulega raunverulegur hvati.

Ég held að það sé einmitt það sem við þurfum að hugsa um hér á þingi þegar við ræðum hvata að þeir byggist ekki á neikvæðum forsendum, að þeir snúist ekki um að takmarka möguleika fólks til lífsafkomu heldur einmitt hvetja það, að orðanna hljóðan komi þar í gegn með jákvæðum hætti. Það hefur þjóðhagslega jákvæð áhrif. Ég held að það sé stundum vandinn að við grípum fólk allt of seint í kerfinu. Það skiptir máli að við reynum að grípa það fyrr. Það held ég að hafi mjög jákvæð áhrif þjóðhagslega. Það snýst um lýðheilsu og forvarnir og annað slíkt. (Forseti hringir.) Á það ættum við að horfa frekar en neikvæðar takmarkanir eins og ég kýs að kalla skilyrðingar og annað slíkt.