fjárlög 2016.
Virðulegi forseti. Mig langar til að byrja á að þakka hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni enn og aftur fyrir frábæra ræðu. Það er sjaldan sem maður verður var við jafn mikinn þrótt í þessum þingsal og þegar hv. þingmaður tekur til máls. Mig langar til að spyrja hv. þingmann varðandi breytingartillögur meiri hlutans til sjúkrahúsanna. Þar eru nokkrir liðir, sérstaklega á bls. 42 og 43 og á fleiri stöðum.
Ein breytingartillagan er upp á 840 millj. kr., önnur upp á 280 millj. kr. og síðan er einn liður sem heitir Sjúkrahús, óskipt. Óskipt framlag til reksturs sjúkrahúsa. Þar er sagt að gerð sé tillaga um 50 millj. kr. tímabundið framlag til sjúkrahúsa.
Við erum að reyna að skilja hvað meiri hlutinn vill og hér er liður sem er sérstaklega um sjúkrahús. Ég veit að það er sameiginlegt áhugamál okkar beggja, mitt og hv. þingmanns, að gera betur við sjúkrahúsin. Þarf ekki að fá betri útskýringar á þessu? Hérna er ekki frekari útskýring á því máli heldur er bara sagt: „Gerð er tillaga um 50 millj. kr. tímabundið framlag til sjúkrahúsa.“ Veit hv. þingmaður hvað það þýðir? Í öðrum stórum liðum er ítarleg greinargerð um hvað verið er að gera, m.a. að útrýma biðlistum og hins vegar að kaupa dýrari lyf sem annars hafa verið ófáanleg.