fjárlög 2016.
Herra forseti. Nú ætlar hv. þingmaður mér miklu meira vald en mér er gefið. Nú er ég, eins og hæstv. forseti lýðveldisins, fullkomlega ábyrgðarlaus af stjórnarathöfnum og ræð engu um það með hvaða hætti stjórnarliðið gerir sínar tillögur. Hins vegar er það þannig að í áranna rás hefur Alþingi jafnan verið nokkuð drjúgt við að styðja frjáls félagasamtök sem þykja hafa unnið gott starf. Mér kemur til hugar gagnvart Lions-hreyfingunni að hún hefur náttúrlega unnið feykilega fínt starf að því marki að hún hefur staðið fyrir stórkostlegum fjársöfnunum í gegnum árin til að kaupa tæki, meðal annars til að lækna og líkna. Hugsanlega er það einhvers konar endurgjald vegna þess.
Ef hv. þingmaður veltir því fyrir sér hvort þarna séu einhver tengsl þessara hreyfinga inn í stjórnmálaflokkana þá er mér það hulið. (Forseti hringir.) Ég er í engu félagi nema Neistanum, líknarfélagi fyrir hjartveik börn og svo er ég í Samfylkingunni, enn þá að minnsta kosti.