145. löggjafarþing — 55. fundur,  16. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[02:33]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Fjárveitingar til endurnýjunar, viðhalds húsnæðis, tækjakaupa og framþróunar eru afar lágar hér á landi. Mér fannst það ekki góðar fréttir þegar OECD-skjölin sýndu að við erum í næstneðsta sæti hvað þetta varðar, mitt á milli Grikklands og Mexíkó. Það er ekki félagsskapur sem við viljum vera í. Ef við ættum að standa jafnfætis Danmörku t.d. þá ættu 14 milljarðar að vera eyrnamerktir til þessara liða á ári. Við erum langt frá því.

Við höfum náttúrulega rætt um að það þurfi að byggja nýtt þjóðarsjúkrahús og við höfum dregið úr viðhaldi á meðan við vorum að krafsa okkur upp úr kreppunni. En við þurfum augljóslega að gefa í og koma okkur af þeim stað sem við erum á.

Það er náttúrulega þannig, svo ég segi það bara og nota mínar síðustu sekúndur í það, að það eru sár vonbrigði hvernig ríkisstjórnin fer með árangurinn sem við byggðum undir og fólkið í landinu. Það er verið að spandera þeim árangri í að gefa til baka fólki sem er forríkt. Lækka veiðigjöld, lækka auðlegðarskatt, gera tekjuskattsbreytingar sem draga úr jöfnunarhlutverki og gefa mestan afslátt til þeirra sem þurfa ekki á því að halda og svona mætti lengi telja. Þess vegna er afkomubatinn á milli ára í fyrsta sinn í mínus (Forseti hringir.) frá hruni. Það er vegna lélegrar fjármálastjórnunar og þeirrar hægri stefnu sem veður hér uppi.