lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Nú er þessi umræða um fjárlagafrumvarpið að verða ansi löng og verður líklega talsverð bið á því að þetta met stjórnarandstöðunnar verði slegið.
Ég styð þá tillögu forseta að þingfundur geti staðið lengur en vant er, inn í kvöldið og jafnvel inn í nóttina. Staðan er sú að stjórnarandstaðan hefur talað gríðarlega lengi og það verður auðvitað að segjast að meðan stjórnarandstaðan er ekki tilbúin til þess að gefa það út hversu lengi 2. umr. fjárlaga á að standa þá á forseti og þar af leiðandi þingið ekki annan möguleika en að halda kvöld- og næturfundi. Ég skora hins vegar á stjórnarandstöðuna að láta af þessum gamaldags vinnubrögðum, setjast niður og gefa það upp hvenær hún hyggst enda þessa umræðu, hvenær menn hyggjast hætta 2. umr. um fjárlagafrumvarpið og ganga til lýðræðislegrar atkvæðagreiðslu (Forseti hringir.) þar sem kemur fram hvort það er meiri hluti (Forseti hringir.) fyrir fjárlagafrumvarpinu og þeim fjölmörgu breytingartillögum sem stjórnarandstaðan hefur mælt fyrir eða ekki.