fjárlög 2016.
Virðulegur forseti. Af því að hv. þm. Bjarkey Gunnarsdóttir kallaði hér fram í rétt áður en ég kom í púltið og sagði að ég ætti að fara varlega þá ætla ég að gera það, ég geri það ávallt þegar ég kem í ræðustól.
Ég skil nú ekki þennan mikla æsing í stjórnarandstöðunni. Staðreyndin er sú að þessi umræða er búin að taka gríðarlega langan tíma. Ég vil hvetja hæstv. forseta til þess, og veit að hann hefur gert það, að reyna að setja sig í samband við þingflokksformenn stjórnarandstöðunnar til þess að fá upplýsingar um hvenær umræðan getur tekið enda.
Ég tek undir með hv. þm. Jóni Gunnarssyni, það er auðvitað gríðarlega mikilvægt fyrir vinnu þingsins að við getum fengið upplýsingar um það hjá stjórnarandstöðunni hvenær hún hyggst enda þessa umræðu og ganga til atkvæðagreiðslu, lýðræðislegrar atkvæðagreiðslu, þar sem fram kemur hvort meiri hluti er fyrir tillögum stjórnarandstöðunnar sem hún hefur (Forseti hringir.) verið að tala hér fyrir í 70–80 klukkustundir. Það er hið lýðræðislega ferli. Ég vil hvetja (Forseti hringir.) hv. stjórnarandstöðu til þess að (Forseti hringir.) hleypa þessu lýðræðislega ferli að.