fjárlög 2016.
Hæstv. forseti. Ef ég hef einhvern tímann efast um að langir næturfundir séu mjög slæmir og geti farið illa með þingmenn (Gripið fram í.) þá fékk ég staðfest áðan að þetta er ekki vinnulag sem hægt er að nota. Hv. varaformaður fjárlaganefndar var á vaktinni í gær en hv. þm. Vigdís Hauksdóttir var heima. Þannig hefur þessu verið skipt. (BjG: … í fyrradag.) Mér sýnist sem langar vökur og mikil vinna geti farið mjög illa í menn.
Það er alveg rétt að á síðasta kjörtímabili var mjög erfitt að takast á við gjaldþrot landsins, 220 milljarða halli á fjárlögum á þáverandi verðlagi sem þurfti að bregðast við. Sú ríkisstjórn sem þá var gerði það með ábyrgum hætti, en það var ekkert alltaf voðalega gaman. Maður gerði ekki með voðalega mikilli gleði ýmislegt sem þá þurfti að gera, en það þurfti að gera. Það er meðal annars vegna aðgerða síðustu ríkisstjórnar, þ.e. hvernig var tekið á fjárlagahalla og fjármálum ríkisins, sem menn njóta ávaxtanna í dag. Menn eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson skreyta sig með stolnum og vondum fjöðrum sem jafnvel fara þeim ekki. Menn þola ekki allir það fiður.
Það er staðreynd sem hér hefur komið fram að stjórnarmeirihlutinn er að setja fram í nefndaráliti sínu að hækkað hafi verið framlag til Landspítalans um 30% í tíð núverandi stjórnar. Þetta er rangt eins og ég fór yfir. Bið ég nú hv. þm. Guðlaug Þór Þórðarson um að koma aftur í andsvar og í guðanna bænum taktu aftur upp svarið og lestu aftur upp niðurskurðinn (Forseti hringir.) og allt það. Gæti þingmaðurinn farið aðeins lengra aftur og rætt við okkur (Forseti hringir.) um það þrotabú sem þáverandi ríkisstjórn (Forseti hringir.) tók við eftir 12 ára valdasetu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, gjaldþrota bú?