fjárlög 2016.
Herra forseti. Auðvitað er kúnstugt að heyra hæstv. forsætisráðherra koma hér upp og guma af þeim árangri sem náðst hefur í jöfnun tekna sem náðist fyrst og fremst í tíð síðustu ríkisstjórnar þegar allar aðgerðir núverandi ríkisstjórnar; afnám auðlegðarskatts, orkuskatts, lækkun veiðigjalda, að fletja út skattkerfið, fækka skattþrepum, hækka matarskatt; (Gripið fram í.) skila allar auknum (Forseti hringir.) ójöfnuði. Það þarf ekki (Gripið fram í.) að líta langt, það þarf bara að líta til rannsókna og gagna. Horfum til dæmis til OECD sem beint hefur þeim tilmælum til aðildarríkja sinna að fletja ekki út skattkerfi því að þær aðgerðir miði að því að auka ójöfnuð. Ríkisstjórn Íslands hefur kosið að hlusta ekki á þær ábendingar OECD. Því er kúnstugt að heyra stjórn, sem ekki er hægt að kalla annað en ójafnaðarstjórn í öllum (Gripið fram í.)sínum aðgerðum, hrósa sér af árangri annarra. Hæstv. forsætisráðherra talar um að hér sé alið á óánægju. Almenningur í þessu landi er alveg (Forseti hringir.) fullfær um að draga sínar ályktanir sjálfur, því get ég lofað hæstv. forsætisráðherra.