145. löggjafarþing — 56. fundur,  16. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[19:19]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Ég tek undir með síðasta ræðumanni. Ég vek athygli á því að kvörtunum sem umboðsmaður fékk til sín fjölgaði úr 300 í 500, það eru um 40%. Það er óeðlilegt að við séum að skera niður hjá stofnun af þessu tagi þar sem aðhaldið sem umboðsmaður veitir stjórnsýslunni er afar mikilvægt. Þetta er þjónusta við borgarana sem við erum þarna að gæta. Þetta er sá aðili sem þjóðin treystir þegar kemur að því að vera með óháð álit. Hann hefur sagt að hann þurfi 15 milljónir til viðbótar til að geta sinnt frumkvæðisrannsóknum eins og hér hefur komið fram. Í nefndaráliti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar eru rakin ákveðin verkefni sem ég tel að meiri hluti þingheims þurfi að kynna sér áður en hann tekur ákvörðun um að skera niður eins og kemur fram í næsta lið á eftir.