145. löggjafarþing — 56. fundur,  16. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[20:33]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (F):

Herra forseti. Ef hv. þingmenn hafa lokið rökræðum hérna í salnum ætla ég að fá að gera grein fyrir atkvæði mínu. Ég fagna því mjög að þessi sérstaka fjárveiting skuli vera komin til fyrir löggæsluna. Ég vona að hún verði notuð til uppbyggingar en ekki til að vinna bug á hallarekstri sem hefur verið undanfarin ár. Ég sagði hér í sérstakri umræðu á sínum tíma, um löggæslu í landinu, að þessar 400 milljónir væru ekki nóg en þær væru ágætisbyrjun. Ég ætla að endurtaka það hér. Þær 400 milljónir sem hér eru lagðar fram eru ekki nóg til að tryggja löggæslunni nægilegt svigrúm til að sinna verkefnum sínum en þetta er ágætisbyrjun og ég fagna henni.