145. löggjafarþing — 56. fundur,  16. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[20:45]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Það er rétt að þær 45 milljónir sem hv. meiri hluti fjárlaganefndar leggur til duga ekki. Það hefur komið fram í máli forstjóra Fangelsismálastofnunar, Páls Winkels, að það gæti þurft að loka fangelsum. Hann hefur nefnt bæði Akureyri og Kvíabryggju í því sambandi. Það er alveg ljóst að þrátt fyrir að fangelsið á Hólmsheiði verði tekið í notkun á næsta ári þá kemur það ekki til með að geta sinnt þeim þörfum sem nú eru. Auk þess ef þarf að loka fangelsum á landsbyggðinni þá erum við auðvitað illa stödd. Þeir fangar sem þar sitja inni verða þá fjarri fjölskyldum sínum.

Við verðum að halda betur utan um þetta. Þetta eru ekki stórar fjárhæðir sem hér er verið að leggja til til viðbótar en gætu breytt heilmiklu. Nú þegar bíða 500 eftir afplánun. Við erum með 155 pláss í fangelsum landsins. Það er alveg ljóst að það þarf eitthvað (Forseti hringir.) verulega mikið að breytast hér, virðulegi forseti, ef þetta á að ganga upp.