145. löggjafarþing — 56. fundur,  16. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[21:32]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Forseti. Íslendingar. Aldraðir og öryrkjar eiga að fá sömu kauphækkanir og aðrir og þeir eiga að fá þær á sama tíma og aðrir. Þess vegna segi ég já.

Þegar formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra segir að aldraðir og öryrkjar hafi fengið sömu hækkanir í ár og aðrir í landinu þá þarf ég ekki að leiðrétta þær rangfærslur. Aldraðir og öryrkjar á Íslandi vita það best sjálfir hvort þeir fengu sömu hækkanir og aðrir í landinu á þessu ári eða hvort fjármálaráðherrann fer með rangt mál.