fjárlög 2016.
Herra forseti. Þessi breytingartillaga minni hlutans snýst um fjárfestingu til framtíðar. Fæðingarorlofskerfið er gríðarlega mikilvægt fyrir framtíðina til að hvetja fólk til barneigna og til að tryggja að það geti sinnt börnum sínum á fyrstu mánuðum þeirra.
Eins og hv. þingmaður sem hér talaði á undan gerði hvet ég hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans til að greiða þeirri tillögu atkvæði. Það er því miður ekki að gerast og þá er niðurstaðan svo dapurleg sem það er að þessar fjárhæðir breytast ekki, þannig að hér er ekki verið að hugsa til framtíðar. Hér er ekki verið að fjárfesta í framtíðinni og því kerfi sem við hefðum getað verið stolt af að eiga á Íslandi. Ég segi já við tillögunni.