dagskrá næsta fundar.
Virðulegi forseti. Við höfum verið að ræða fjárlög sem eru eitt stærsta mál á þingvetrinum. Á leiðinni hérna inn áðan hitti ég hóp elli- og örorkulífeyrisþega sem höfðu mikinn áhuga á þessu máli og því hvernig fjárlögunum vindur fram. Við eigum eftir að klára fjárlögin. Við eigum eftir að klára bandorm, klára fjáraukalög. Það þykir mér skipta mjög miklu máli. Það hlýtur að vera forgangsröðunin núna á þessum dögum, löngu eftir að við erum komin fram yfir áætlun þingsins, að klára þessi lykilmál. Ég er sjálfur mikill áhugamaður um Þróunarsamvinnustofnun og hlakka mikið til að taka hana til umræðu. En ég skil ekki að það mál, sú formbreyting, sé orðið áhersluatriði hjá ríkisstjórnarflokkunum og hæstv. ríkisstjórn. Ég átta mig ekki alveg á því. En ekki stendur á mér, ég hlakka til umræðunnar.