alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.
Frú forseti. Ég þakka hv. formanni utanríkismálanefndar fyrir skýra framsögu fyrir viðhorfum hv. þingmanna stjórnarliðsins í nefndinni. Ég get ekki neitað því að ég varð fyrir nokkrum vonbrigðum með efnislega niðurstöðu í máli hv. þingmanns. Hins vegar hefur enginn þingmaður sem hingað hefur stigið inn á síðustu tíu árum haft jafn mörg og skýr orð uppi um að það sé nauðsyn á samtali, nauðsynlegt að ná sátt um niðurstöðu og menn þyrftu jafnan að teygja sig yfir ágreining. Ég geri mér því glöggar vonir um að hv. formaður, sem ég tel nú í hópi vitsmunavera á þessu þingi, kunni hugsanlega þegar líður á umræðuna og við erum búin að reyna að skoða málið frá ýmsum hliðum, eins og er tilgangur þessarar umræðu, að sjá að ef til vill er sú breytingartillaga, sem við getum kallað sáttatillögu, sem hér liggur fyrir af okkar hálfu, ekki jafn galin og ófarsæl og vænta má. Ég reifa hana vitaskuld betur í máli mínu síðar í dag. En af því að hv. þingmaður talaði um langa umræðu má margt segja um umræðuna og nefndarstarfið. Ég tel að það skipti engu máli. Ég er sammála hv. þingmanni um það. Málið er þrautrætt og eins og fram kom í máli okkar í nefndinni þurftum við ekki frekari yfirferð. En við þurftum þetta. Sú yfirferð leiddi til þess að við komum fram með tillögu sem byggðist á breytingu sem orðið hafði á lagaramma millum þess að málið var lagt fram í hið fyrra skipti og síðara skipti.
En af því að ráða mátti af annars hógværu máli hv. formanns og miklu frekar hér á orðahnippingum fyrr í dag að það hafi verið einhver sérstaklega langur tími og tafir af okkar hálfu verð ég að rifja upp fyrir hv. formanni að það var stjórnarmeirihlutinn sem gerði rof í 2. umr. (Forseti hringir.) málsins frá 22. október til 18. nóvember. Þar glataðist heill mánuður. Heldur hv. þingmaður að ekki hefði mátt vera búið að ljúka þessu máli fyrir lifandis löngu ef stjórnarmeirihlutinn hefði sýnt meiri rögg, tekið þetta mál hér á dagskrá? Í heilan mánuð lá það utanveltu þings.