145. löggjafarþing — 58. fundur,  18. des. 2015.

Seðlabanki Íslands.

420. mál
[21:56]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Mér finnst mjög mikilvægt að hv. efnahags- og viðskiptanefnd fari þá yfir aðkomu þingsins að því þegar samningur er undirbúinn og hvernig nákvæmlega hann verður kynntur fyrir nefndinni eða þinginu eftir atvikum. Það má kannski líka ræða hvort ekki sé ástæða til að Alþingi allt fái að fylgjast með þessu máli en ekki aðeins hv. efnahags- og viðskiptanefnd. Ég held að það sé í sjálfu sér mikilvægt og við eigum að læra af reynslunni í þeim stóru málum sem hér hafa verið til umfjöllunar. Þar hefðum við getað gert betur í því að mínu mati að taka umræðuna inn á Alþingi í heild sinni.

Hitt sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um er sú staðreynd að meginhlutverk seðlabanka er ekki umsýsla eigna. Eigi að síður er hér valin sú leið að stofna félag inni í Seðlabankanum til þess að annast þessa umsýslu. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Kom einhver önnur leið til greina? Að stofna sérstakt félag? Hvort hann gæti aðeins farið yfir röksemdina fyrir því af hverju þessi leið er farin og ekki að stofna sérstakt félag í eigu ríkisins til að annast þessa umsýslu eða einfaldlega fela Bankasýslunni víðtækara hlutverk en hún hefur nú þegar. Ef hæstv. ráðherra gæti aðeins farið yfir rökstuðninginn fyrir því.