Seðlabanki Íslands.
Herra forseti. Ég ætla í örstuttu máli að gera grein fyrir afstöðu minni. Í 4. mgr. 1. gr. er í reynd verið að leggja til feril um það með hvaða hætti Seðlabankinn og hv. efnahags- og viðskiptanefnd eiga að koma að ráðstöfun andvirðis hinna innleystu eigna. Þetta er nákvæmlega sami ferill og var lögfestur hér þegar við vorum með stöðugleikaskattinn, sællar minningar, sem ég græt alla tíð. Ég tek það reyndar fram að ég hefði miklu frekar viljað fara þá leið en þessi leið dugar, segir hæstv. ráðherra og Seðlabankastjóri. Svo bíðum við bara eftir að geta lagt höndina í sárið og séð hvort þeir hafi trúað rétt. Í öllu falli, á þeim tíma þegar það var samþykkt lét ég koma fram gagnrýni á þann feril, að því marki að ég var í sjálfu sér alveg sáttur við að það ætti að hafa samráð við Seðlabankann, en það er í reynd eina haldið sem menn hafa í dag gagnvart ráðstöfun fjárins. Það er nákvæmlega sama orðalag þarna og var í frumvarpinu um stöðugleikaskattinn að því er varðar Alþingi, þ.e. það á að kynna þetta fyrir efnahags- og viðskiptanefnd.
Nú er rétt að ég rifji upp að sá okkar sem hefur — ég þori nú ekki að segja það ef hv. þm. Vilhjálmur Bjarnason er í húsi að sá einstaklingur hafi mesta þekkingu á fjármálum — alla vega mest vald af okkur þingmönnum er hv. þm. Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar. Á sínum tíma hélt hann hér mjög magnaðar ræður og sagði að það væri stórhættulegt að eyða nokkru af þeim peningum sem koma inn vegna framlagsins. Hann taldi að peningarnir væru í reynd ígildi umframkróna og talaði í þá veru að þeim væri best varið með því að brenna þeim. Það voru orð hv. þingmanns hér á þinginu í vor. Hann hafði svo snjalla rökfærslu uppi að ég féll kylliflatur fyrir henni eins og mörgu öðru sem sá ágæti hv. þingmaður hefur sagt.
Mér finnst því mikilvægt að þingið hafi einhverja handfestu á málinu. Við vitum að framkvæmdarvaldið er stöðugt orpið undir freistnivandann. Við vitum til dæmis þegar kemur að kosningum, hver sem er í ríkisstjórn, að það er alltaf sú freisting fyrir hendi að framkvæmdarvaldið vilji seilast til einnar og einnar lúku af þeim sjóðum sem eru inni á lokuðum reikningum og veita út um æðakerfi þjóðarlíkamans því að slíkt er oft til vinsælda fallið rétt fyrir kosningar. Á þeim tíma töluðum við flest, fannst mér, í þá veru að það væri nauðsynlegt að þingið gæti þess vegna haft einhvers konar aðkomu að málinu. Niðurstaðan í því varð ekki önnur en sú að það á að kynna efnahags- og viðskiptanefnd málið. Mér finnst í það allra grynnsta farið.
Hvert er þá aðhaldið sem við höfum í gegnum stofnanir ríkisins að þessum þætti ferlisins? Það er í gegnum Seðlabankann. Það á að hafa samráð við Seðlabankann. Í því felst ekkert annað en það orð þýðir, þ.e. það á að ráðgast við hann. Seðlabankinn getur ekki sagt nei. En auðvitað fælist í því sterkt aðhald ef Seðlabankinn mundi gefa umsögn um ætlaða ráðstöfun andvirðis eignanna sem væri neikvæð. Það mundi draga mjög úr trúverðugleika viðkomandi fjárlagafrumvarps og þar með ríkisstjórnar. Vissulega er það aðhald, en ég er eldri en tvævetur og veit auðvitað að fram hafa komið sterkar vísbendingar um að það er vilji af hálfu stjórnarflokkanna um að skipta um yfirstjórn á Seðlabankanum, bæði um einstaklinga og fyrirkomulagið allt. Það er margyfirlýst af hálfu að minnsta kosti annars stjórnarflokksins ef ekki beggja en örugglega af einstaklingum innan beggja stjórnarflokkanna að það sé vilji til að breyta yfirstjórninni þannig að í stað eins seðlabankastjóra verði þeir þrír eins og áður fyrr. Ég óttast söguna í þeim efnum. Vitaskuld færu menn í að afla þeirra seðlabankastjóra eftir hæfisreglum en það er alltaf sú hætta fyrir hendi þegar komnir eru þrír menn í yfirstjórn Seðlabankans að möguleiki sé á pólitískum seilingum. Til þess að vega upp á móti því tel ég að þingið eigi í gegnum margþætta tilvist sína að hafa aðkomu að málinu.
Út á hvað gengur verkaskipting valdþáttanna í stjórnskipun okkar? Hún hvílir á aðhaldi, sem á ensku heitir, með leyfi forseta, „checks and balances“. Við viðhöfum það þannig í stjórnskipuninni að löggjafinn á að stemma framkvæmdarvaldið af og síðan stemmir dómsvaldið alla hina þættina af. Hvarvetna í kerfinu reynum við að búa til viðnám þar sem ólíkir valdþættir vegast á til að gæta þess að það verði ekki óheppilegir hagsmunaárekstrar. Þetta heitir að verja hag almennings og heildarinnar.
Í þessu efni, þar sem við erum að ræða um þrjá þætti, þ.e. Seðlabankann, framkvæmdarvaldið og löggjafann, þá finnst mér að í þeim umbúnaði sem er kynntur í 4. mgr. 1. gr. halli á löggjafann. Mér finnst að það þurfi með einhverjum hætti að púkka undir hann. Þetta er mitt viðhorf við 1. umr. Ég hef engar sérstakar tillögur um hvernig á að gera það. Ég beini því hins vegar mjög eindregið til efnahags- og viðskiptanefndar að skoða það út í hörgul. Þetta er það helsta sem ég hef varðandi þennan þátt.
Að öðru leyti um hinn part frumvarpsins, þ.e. félagið sjálft, utanumhald um það og eftirlit með því, finnst mér málum ágætlega komið fyrir af hálfu hæstv. fjármálaráðherra. Ég hef ekki athugasemdir við það að þetta félag sé vistað og sé innan stokks hjá Seðlabankanum. Þar kemur kannski tvennt til. Ég tel að það sé ágæt reynsla af Seðlabankanum í öllu þessu máli, bæði varðandi ráðgjöf hans og með hvaða hætti hann hefur haldið utan um eignir innan eignarhaldsfélagsins. Það vinnur með því að fara þessa leið. Síðan er ég er giska sáttur við það að eftirliti með ráðstöfun eignanna, þ.e. innleysingu þeirra, verði þrátt fyrir allt með óbeinum hætti undir eftirliti þingsins í gegnum það að Ríkisendurskoðun á samkvæmt þessu frumvarpi að hafa eftirlit með bæði framkvæmd og starfsemi þessa félags. Það kemur skýrt fram í frumvarpinu og líka í greinargerð að með því verði líka tekin yfir ráðstöfun eignanna. Ég er eigi að síður þeirrar skoðunar, eins og ég hef þegar látið koma fram í þessari umræðu í kvöld, að það væri heppilegt og sennilega þarft fyrir alla, með tilliti til krafna um gagnsæi, að með einhverjum hætti væri þinginu gerð frekari grein fyrir framvindunni meðan á ráðstöfun eigna stendur. Það væri hægt með tvennum hætti. Auðvitað í gegnum efnahags- og viðskiptanefnd en það væri líka hægt að gera það með þeim hætti að hæstv. ráðherra gerði þinginu skýrslu um framvinduna, eftir atvikum skriflega, sem efnahags- og viðskiptanefnd mundi þá fara yfir. Ef hún óskaði eftir að hann reifaði málið munnlega í skýrslu yrði það gert. Honum væri það líka í sjálfsvald sett, tel ég, að gera það einfaldlega munnlega. Ég held að ef við næðum einhvers konar sátt um slíkt ferli væri mjög erfitt að gagnrýna það á þeim grundvelli að gagnsæi skorti.
Nú vill svo til að hæstv. fjármálaráðherra hefur útausið tilfinningum sínum um þetta mál og þennan þátt þess hér fyrr í kvöld og sagt að hann sé reiðubúinn að skoða hvaðeina sem gæti orðið til að efna aðkomu þingsins að þeim parti málsins sem viðvíkur afsetningu eigna og innleysingu þeirra þannig að til yrði reiðufé sem færi á þá reikninga sem hér eru tilgreindir í nafni ríkisins í Seðlabankanum.
Þetta eru viðhorf mín og ekki leyni ég því fyrir hæstv. forseta, sem ég trúi jafnan fyrir mínum innstu tilfinningum þegar ég er í ræðustól, að það væri auðvitað nokkur akkur í því að heyra viðhorf hv. þm. Frosta Sigurjónssonar, formanns efnahags- og viðskiptanefndar, til þeirra tveggja meginþátta sem ég hef reifað hér í stuttu máli.