145. löggjafarþing — 58. fundur,  18. des. 2015.

Seðlabanki Íslands.

420. mál
[22:29]
Horfa

Frosti Sigurjónsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hafði nú ekki hugsað mér að koma upp í ræðu í 1. umr. málsins en mun skoða málið mjög vandlega í vinnu nefndarinnar og fagna því að það sé komið fram því hér er verið að gera tilraun til að vanda betur umbúnað um þær miklu eignir sem eru að koma til ríkissjóðs í formi stöðugleikaframlaga. Margar þessara eigna eru ekki í formi reiðufjár heldur í alls kyns öðrum eignum, fjársópsákvæðum, skuldabréfum og hinu og þessu, jafnvel eignarhlutum í félögum. Það getur tekið tíma að koma þessu í það form sem er reiðufé. Á þeirri vegferð er mjög mikilvægt að ferlið sé opið og gagnsætt og armslengd tryggð. Hér er verið að gera tilraun til þess. Ég sé að hér er lagt til að félag sem er í eigu Seðlabankans annist umsýslu eignanna en ég skil það sem svo að eignirnar sjálfar séu samt í eigu ríkissjóðs. (Gripið fram í.) Ég tel mikilvægt að þær séu ekki á efnahagsreikningi Seðlabankans í sjálfu sér. Að sjálfsögðu á efnahagsreikningi ríkissjóðs. Umsýslufélagið í eign Seðlabankans, ég geri ekki athugasemd við það. Mér þykir mun betri bragur á því en eins og er með ESÍ, Eignarhaldsfélag Seðlabanka Íslands, sem er á efnahagsreikningi Seðlabankans. Það er vandræðalegt mál og getur valdið truflun á starfsemi Seðlabankans sem þarf að vera mjög hrein og skýr og ætti ekki að vera af því tagi.

Varðandi svarið við því atriði sem var beint til mín, þó að það sé kannski mitt að spyrja hv. ræðumann, þá tók ég eftir því að hv. þingmaður velti fyrir sér aðkomu þingsins að þessu ferli, að umbreyta eignum í reiðufé, að selja þær. Hann er væntanlega sammála mér í því að það sé ekki hlutverk ríkisins að eiga þessar eignir til langframa. En það er vandlega búið um það þegar reiðufé er komið hvernig það er síðan sett í umferð. Ég tel að um það sé vandaður umbúnaður. Er hann ekki sammála mér um að þeim þætti (Forseti hringir.) sé nokkuð tryggilega ráðstafað?