fjárlög 2016.
Virðulegi forseti. Ég vil fyrst segja hvað varðar umfang þess hluta rekstrar Ríkisútvarpsins sem er keyptur að, efniskaup frá sjálfstætt starfandi framleiðendum, þá er rétt að horfa á það sem hlutfall af heild. Ríkisútvarpið hefur til umráða með auglýsingatekjum hátt á sjötta milljarð króna og það verður auðvitað að horfa á þetta í hlutfalli við það. Ég tel að innan Ríkisútvarpsins sé áfram sú fagþekking og kunnátta sem skiptir okkur svo miklu máli í menningarlegu samhengi. Þetta er jú stærsta menningarstofnun þjóðarinnar og gríðarlega mikilvæg í því samhengi. Ég held að ef horft er til síðustu ára hjá Ríkisútvarpinu þá hefur undir stjórn núverandi útvarpsstjóra verið vaxandi þáttur í starfseminni að kalla eftir efni frá sjálfstætt starfandi framleiðendum. Ég held ég fari rétt með að á þessu ári stefni í að 450 millj. kr. verði varið til þessara þátta, mun hærri upphæð en hún var á árinu 2014, svo dæmi sé tekið. Þannig að þessi ákvörðun og þetta upplegg er í takt við það. En aðalatriðið er að þetta komi fram í þjónustusamningi.
Þá vil ég segja það að gefnu tilefni að ég hyggst, ef virðulegur forseti þingsins leyfir, koma með þjónustusamninginn hingað til þings, t.d. í formi skýrslu, þar sem við gætum rætt þann samning og helst áður en búið væri að skrifa undir hann, undirritun á slíkum samningi mundi þá frestast aðeins. Ég held að það sé gott að við ræðum slíkan samning í þinginu þannig að sjónarmið þingmanna komi fram áður en gengið er frá slíku. Ég held að það sé til bóta í umræðunni um Ríkisútvarpið.