145. löggjafarþing — 60. fundur,  19. des. 2015.

málefni aldraðra o.fl.

398. mál
[18:43]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég get tekið undir að málið kemur inn 2. desember, það er mælt fyrir því 17. desember og hér er verið að gera það að lögum. Í mínum huga er þetta ekki stór aðgerð og ég tel hana ekki stefnubreytanlega. Ég tek þó undir með þeim sem hér hafa talað, þetta vinnulag er okkur ekki til sóma og því þarf að breyta. Engu að síður legg ég til við þingheim að hann samþykki þetta frumvarp.