145. löggjafarþing — 63. fundur,  19. jan. 2016.

framhaldsfundir Alþingis.

[13:31]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Ég þakka hæstv. forsætisráðherra góðar óskir í garð okkar alþingismanna.

Háttvirtir alþingismenn. Nú þegar Alþingi er saman komið á nýju ári hvarflar hugurinn til haustþingsins. Því verður ekki á móti mælt að ýmislegt gekk þar öðruvísi fyrir sig en æskilegt hefði verið, sérstaklega við lok þess þinghalds. Mjög er nú kallað eftir því, jafnt innan þings sem utan, að við á Alþingi gerum ýmsar breytingar á starfsháttum okkar og verklagi. Að þessu hljótum við þingmenn að hyggja á vetrar- og vorþinginu og hlusta þannig vel eftir þeim gagnrýnisröddum sem heyrst hafa. Það er minn ásetningur að vinna að því í samvinnu við forustu þingflokkanna.

Ég vil láta í ljósi ánægju mína með að Alþingi hefur með sérstakri fjárveitingu á fjárlögum fyrir þetta ár tekið ákvörðun um að hefja undirbúning að því að reisa skrifstofubyggingu á Alþingisreit. Þeirri byggingu er ætlað að leysa af hólmi það dreifða húsnæði sem Alþingi leigir nú fyrir skrifstofur þingmanna og nefndastarfið. Það er ótvíræður kostur fyrir störf Alþingis að allt húsnæði þess sé í samtengdum byggingum á einum stað. Þá skiptir ekki síður máli hin fjárhagslega hagkvæmni þess fyrirkomulags enda er það mat sérfræðinga að hagstæðara sé fyrir Alþingi að byggja en leigja húsnæði á dýrustu reitum Reykjavíkurborgar. Á fundi forsætisnefndar í gær var samþykkt frumathugun vegna hins fyrirhugaða húsnæðis sem unnin hefur verið í nánu samstarfi við nefndina og byggist á ítarlegri þarfagreiningu.

Það er einnig ánægjulegt að geta þess að á þessu ári standa vonir til að unnt verði að ljúka endurbótum á húsinu Skjaldbreið. Með þeirri framkvæmd verður langt komið að skapa heillega götumynd við Kirkjustræti sem hefur mikla þýðingu fyrir ásýnd Alþingisreitsins og miðborgarinnar.

Ég vil einnig greina frá því við þetta tækifæri að framkvæmdastjóri nefndar um 100 ára afmæli kosningarréttar kvenna, Ásta R. Jóhannesdóttir, hefur afhent mér skýrslu um störf nefndarinnar, en nefndin lauk störfum við lok afmælisársins. Skýrslan verður birt á vef Alþingis. Hún veitir góða innsýn í það mikla starf sem hundruð einstaklinga um land allt inntu af hendi til að gera afmælisárið að eftirminnilegum viðburði. Það má segja að kosningarréttarafmælið hafi verið einstakt að því leyti að þess var minnst með ýmsu móti allt síðastliðið ár og um land allt með þátttöku fjölda fólks þótt hápunkturinn hafi auðvitað verið þann 19. júní.

Í skoðanakönnun sem var gerð að frumkvæði afmælisnefndarinnar kom fram að viðburðir sem tengdust afmælisárinu náðu mjög vel til almennings. Er þetta til marks um að vel tókst til. Það er til dæmis áhugavert að 52% landsmanna horfðu á sjónvarpsþættina „Öldin hennar“ sem voru sýndir í ríkissjónvarpinu.

Fyrir hönd Alþingis vil ég þakka öllum sem að þessu starfi komu fyrir þeirra framlag. Ég ítreka þakkir mínar til þingmanna fyrir samstarfið á liðnu ári og ber þá von í brjósti að okkur megi auðnast að halda svo á málum á vetrar- og vorþingi að Alþingi verði sómi að.