145. löggjafarþing — 64. fundur,  20. jan. 2016.

störf þingsins.

[15:06]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Í lok árs 2014 seldi Landsbankinn hlut í Borgun fyrir luktum dyrum og án þess að samkeppni væri um þann eignarhlut. Kaupverðið vakti undrun og sérstaklega þegar í ljós kom síðar að hraustleg arðgreiðsla kom úr fyrirtækinu á árinu 2015. Nú berast fréttir af því að hagnaður muni verða sem milljörðum skiptir vegna yfirtöku Visa International á Evrópuhluta Visa.

Það verður því að segjast eins og er að kaupin á hlutnum í Borgun hljóta að teljast kaup aldarinnar í íslensku viðskiptalífi og við hljótum að spyrja þeirra spurninga hvað réði verðmati Landsbankans nú þegar þessar upplýsingar koma upp á borðið og við hljótum að krefjast alvörurannsóknar á því með hvaða hætti var staðið að þessari sölu. Fjármálaeftirlitið þarf að láta þetta til sín taka og ef á þarf að halda stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis og nýta þau úrræði sem Alþingi hefur til þess að fá allar staðreyndir upp á borðið í máli sem þessu. Þetta er ekki síst mikilvægt nú þegar fyrir liggur að ríkið þarf að selja ríkisbanka og þeir flokkar sem nú sitja í ríkisstjórn hafa skelfilega sögu af því að koma slíkum eignum í hendur aðila á markaði. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)

Nú liggur fyrir þinginu frumvarp um að fela eignarhaldsfélagi Seðlabankans sölu á um 60 milljarða eignum og í því er gert ráð fyrir bæði að stjórn félagsins njóti ábyrgðarleysis í gerðum sínum og að einstakir starfsmenn geti tekið ákvarðanir um sölu eigna allt að einum milljarði.

Ég hlýt að spyrja, virðulegi forseti: Er ekki ástæða til þess að Alþingi láti þetta mál nú til sín taka af alvöru, marki alvöruleikreglur að þessu leyti og (Forseti hringir.) krefji Landsbankann um reikningsskil þeirra fáránlegu ákvarðana sem teknar voru við sölu Borgunar í leyni árið 2014?


Tengd mál

Efnisorð er vísa í ræðuna