145. löggjafarþing — 64. fundur,  20. jan. 2016.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

13. mál
[16:46]
Horfa

Flm. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég kom hingað upp til að veita andsvar en ekki til að færa rök fyrir þessu máli. Ég hef flutt framsögu málsins og mun kannski halda aðra ræðu í þessari umræðu þar sem ég færi mín rök fyrir málinu.

Mig langar að ítreka seinni spurningu mína, hvort þingmaðurinn hafi meiri áhyggjur af að aðgengið skerðist eða aukist við að frumvarpið nái fram að ganga og hverjar neikvæðu afleiðingarnar af því að áfengisneysla hafi aukist, frá því að bjórinn var leyfður, eru.

Ég vil að vísu bæta því við að mestu sveiflurnar hvað varðar aukningu virðast fylgja hagsveiflum í samfélaginu. En hver eru stærstu neikvæðu áhrifin af aukinni áfengisneyslu? Er það slæmt ef einhver sem drekkur eina flösku á mánuði færi allt í einu að drekka tvær? Er það farið að snúa samfélaginu á hvolf?