stefnumótun um viðskiptaþvinganir.
Forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir mjög skýr svör sem er óvanalegt oft á tíðum þegar maður spyr ráðherra út í það sem mann langar að vita um það sem er að gerast í stefnu þeirra. Ég hlakka til að skoða betur þá vinnu sem er væntanlega hafin í ráðuneytinu með því að skipa starfshóp til þess að fara ítarlega yfir tilgang og regluverk í kringum viðskiptaþvinganir.
Mér fannst ráðherrann koma inn á mjög mikilvægan punkt þegar við erum að ræða um viðskiptaþvinganir. Þó svo að þær skili oft minni árangri en vonast er eftir eins og réttilega hefur komið fram, þá eru þær næsta skref og ýtrasta skref til að koma í veg fyrir stríð.