vátryggingastarfsemi.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um vátryggingastarfsemi. Helsta markmið frumvarpsins er að auka vernd vátryggingartaka og vátryggðra og tryggja stöðugleika á fjármálamarkaði.
Frumvarpið byggir á tilskipun 2009/138/EB, um stofnun og starfrækslu vátryggingafélaga, sem kölluð hefur verið „Solvency II“-tilskipunin, þ.e. heitir svo á enskunni. Tilskipunin kveður á um fulla samræmingu milli aðildarríkja samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og því er lítið svigrúm til að hafa ákvæðin á annan hátt í frumvarpinu en tilskipunin kveður á um.
Mörg ákvæði frumvarpsins eru nú þegar í gildandi lögum vegna ákvæða í eldri tilskipunum um vátryggingastarfsemi. Þá eru ýmis ákvæði í frumvarpinu sem byggð eru á gildandi lögum en eru komin úr tilskipun ESB. Flest þeirra ákvæða tengdust viðleitni stjórnvalda til þess að bregðast við áföllum á fjármálamarkaði sem hófust á síðari hluta síðasta áratugar og komu inn í lögin 2010.
Ég mun nú fara stuttlega yfir helstu nýmæli í frumvarpinu en það eru níu atriði sem ég ætla að víkja sérstaklega að og þau eru starfsleyfi, eftirlit, stjórnarhættir, birting upplýsinga, vátryggingaskuld, gjaldþol, gjaldþolskrafa, lágmarksfjármagni og sérstakar ráðstafanir.
Þá eru í fyrsta lagi nokkur orð um starfsleyfið. Í frumvarpinu eru gerðar þyngri kröfur til þess að vátryggingafélag fái starfsleyfi. Með umsókn um starfsleyfi verða að fylgja gögn um að gjaldþolskröfu og kröfu um lágmarksfjármagn sé fullnægt ásamt gögnum um að stjórnarhættir uppfylli ákvæði frumvarpsins.
Í öðru lagi um eftirlitið. Reglur um útreikning á fjárhagsgrundvelli vátryggingafélags eru breyttar og verklag við eftirlit verður áhættumiðað verði frumvarpið að lögum. Þá verður verklag á EES-svæðinu samræmt. Ítarlegri greining verður gerð á veikleikum og áhættum vátryggingafélags og því munu aðferðir Fjármálaeftirlitsins við eftirlit breytast. Meðal annars verður upplýsingasöfnun Fjármálaeftirlitsins notuð til þess að móta eftirlitsáætlun, þ.e. niðurstöður úr eigin áhættu- og gjaldþolsmati vátryggingafélags og mati þess á hæfni stjórnar og stjórnarháttum. Fjármálaeftirlitið mun meta sérstaklega og hafa eftirlit með því hvernig vátryggingafélög fullnægja kröfum um stjórnarhætti, vátryggingaskuld, gjaldþol, reglur um fjárfestingar, gæði og fjárhæð gjaldþolsliða. Fjármálaeftirlitið skal leggja mat á það hvort fjárhagsleg staða vátryggingafélags fari versnandi og það á að meta hæfi vátryggingafélags til þess að standast mögulega atburði eða breytingar á markaði.
Í frumvarpinu eru gerðar auknar kröfur um gagnaskil vátryggingafélaga til Fjármálaeftirlitsins og tíðni og umfang gagnaskila mun aukast. Með frumvarpinu er lagt fyrir Fjármálaeftirlitið að haga störfum sínum á gagnsæjan hátt. Fjármálaeftirlitinu ber því til dæmis að birta opinberlega upplýsingar um þau viðmið og matsaðferðir sem það notar við eftirlit.
Í þriðja lagi um stjórnarhættina. Ákvæðin í frumvarpinu miða að því að stjórnkerfi vátryggingafélags sé skilvirkt og gagnsætt og gert er ráð fyrir því að stjórnkerfið sé rýnt reglulega. Þá skal vera til staðar fyrirkomulag sem tryggir samfellu í starfsemi og að til staðar sé viðbragðsáætlun. Innan stjórnkerfis vátryggingafélags þarf að vera starfssvið áhættustýringar, regluvörslu, innri endurskoðunar og tryggingastærðfræðings. Smærri vátryggingafélög geta fengið heimild til að fela sama einstaklingi eða deild að sinna fleiru en einu af þessum verkefnum. Vátryggingafélag skal meta hæfi þeirra sem bera ábyrgð á verkefnum og tilkynna ábyrgðaraðila til Fjármálaeftirlitsins sem getur tekið hæfi þeirra eða stjórnarmanna og jafnvel forstjóra til skoðunar á hverjum tíma. Fjármálaeftirlitið skal hafa aðgang að allri útvistaðri starfsemi vátryggingafélaga og skal vera upplýst áður en mikilvægum verkefnum er útvistað.
Í fjórða lagi um birtingu upplýsinga. Auknar kröfur eru gerðar um opinbera birtingu í frumvarpinu. Meðal annars skulu vátryggingafélög birta árlega skýrslu um gjaldþol og fjárhagslega stöðu til að tryggja gagnsæi á markaðnum. Niðurstaða um lágmarksfjármagn skal tilkynnt ársfjórðungslega til FME og að auki skal vátryggingafélag birta upplýsingar að eigin frumkvæði þegar meiri háttar atburðir hafa áhrif á upplýsingar sem eru opinberar.
Í fimmta lagi um vátryggingaskuld. Vátryggingaskuld er skuldbinding vátryggingafélags vegna vátryggingarsamninga. Vátryggingin skal á hverjum tíma nema þeirri fjárhæð sem vátryggingafélag þarf að greiða ef vátryggingaskuldbinding þess væri flutt til annars vátryggingafélags með skömmum fyrirvara. Meginreglur um tryggingastærðfræðilegar og tölfræðilegar aðferðir sem liggja að baki útreikningi vátryggingaskuldar hafa verið samræmdar á EES-svæðinu til að auðvelda samanburð og tryggja gagnsæi. Verði frumvarpið að lögum munu vátryggingafélög hafa innri ferla og verklag til að tryggja að gögn sem notuð eru við mat á vátryggingaskuld séu viðeigandi, heildstæð og nákvæm. Þá skal vátryggingafélag geta sýnt Fjármálaeftirlitinu fram á að fjárhæð vátryggingaskuldar þess sé hæfilega ákvörðuð og að þau tölfræðilegu gögn sem stuðst er við séu fullnægjandi. Ef mat á vátryggingaskuld er ófullnægjandi getur Fjármálaeftirlitið krafist þess að fjárhæð vátryggingaskuldar sé hækkuð.
Í sjötta lagi um gjaldþol. Gjaldþol er það fjármagn sem vátryggingafélag þarf að hafa tiltækt til að mæta óvæntum áföllum sem ekki er gert ráð fyrir í vátryggingaskuld. Oftast er fjárhæð þessi jöfn eigin fé félagsins, eftir atvikum að frádregnum frádráttarliðum. Í frumvarpinu er gjaldþolið byggt á viðurkenndum gjaldþolsliðum sem eru flokkaðir eftir gæðum í þrjá gjaldþolsþætti. Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með því að vátryggingafélögin flokki gjaldþolsliðina rétt. Öll ákvæði í frumvarpinu varðandi gjaldþol vátryggingafélags eru mun ítarlegri en í gildandi lögum.
Í sjöunda lagi um gjaldþolskröfuna. Í frumvarpinu eru tvær fjármagnskröfur sem þarf að fullnægja. Annars vegar er það gjaldþolskrafan sem er mælikvarði yfir alla mælanlega áhættu vátryggingafélags. Frumvarpið leggur til ramma um það hvernig hún er ákvörðuð en nánari útfærsla mun verða sett í reglugerð. Vátryggingafélagið á að reikna þessa kröfu einu sinni að minnsta kosti árlega en þarf stöðugt að fylgjast með henni.
Hins vegar er það krafan um lágmarksfjármagn sem er áttundi liðurinn sem ég ætla að rekja hér. Lágmarksfjármagn má aldrei nema lægri fjárhæð en sem nemur kjarnagjaldþolsliðum vátryggingafélagsins. Starfsleyfi vátryggingafélagsins skal afturkallað ef virði gjaldþolsliða þess fer undir lágmarksfjármagn og félagið getur ekki rétt við fjárhag sinn á skömmum tíma, sem sagt ef virði gjaldþolsliðanna fer undir lágmarksfjármagn og ekki eru möguleikar til þess að rétta við fjárhæðina á skömmum tíma er starfsleyfi vátryggingafélags afturkallað samkvæmt frumvarpinu. Lágmarksfjármagnið skal ákvarðað að minnsta kosti ársfjórðungslega.
Í níunda lagi vil ég ræða aðeins um sérstakar ráðstafanir sem svo eru nefndar. Meðal nýmæla í frumvarpinu er að vátryggingafélag skal hafa verklagsreglur sem gera því kleift að greina versnandi fjárhagsstöðu og skal félagið tilkynna Fjármálaeftirlitinu án tafar ef hætta er á því að gjaldþolskröfu eða kröfu um lágmarksfjármagn verði ekki fullnægt. Fjármálaeftirlitið mun geta takmarkað eða bannað ráðstöfun vátryggingafélags á eigum sínum og fjármunum ef það fullnægir ekki kröfum um vátryggingaskuld. Í frumvarpinu er lagt til að vátryggingafélag sem fullnægir ekki gjaldþolskröfu eða telur hættu á að slíkt geti gerst innan þriggja mánaða skuli tilkynna Fjármálaeftirlitinu um þá stöðu. Eftirlitið getur þá veitt vátryggingafélaginu frest til allt að níu mánaða til að gera áætlun um endurreisn fjárhags. Sama tilkynningarskylda er lögð til ef vátryggingafélag sér fram á að fullnægja ekki kröfu um lágmarksfjármagn. Endurfjármögnunaráætlun má þá ekki taka til lengri tíma en þriggja mánaða og Fjármálaeftirlitið mun hafa heimild til þess að takmarka eða banna ráðstafanir félagsins á fjármunum sínum og útgáfu nýrra vátryggingaskírteina meðan á því stendur. Ef endurfjármögnun tekst ekki skal Fjármálaeftirlitið afturkalla starfsleyfi félagsins
Virðulegur forseti. Þetta frumvarp er samið af nefnd sem skipuð var fulltrúum frá ráðuneytinu, Fjármálaeftirlitinu ásamt tryggingastærðfræðingum og lögfræðingum frá vátryggingafélögum. Helstu áhrif frumvarpsins á vátryggingafélög, verði það að lögum, eru að þau þurfa að efla innra starf sitt og endurskipuleggja, annars vegar til að hafa tiltækar upplýsingar fyrir gjaldþolsútreikninga og nýjar skýrslur sem frumvarpið gerir ráð fyrir, hins vegar til þess að fylgja reglum um skipulag og stjórnarhætti þar sem innleiddar eru nýjar og ítarlegri reglur en nú gilda.
Verði frumvarpið að lögum mun það bæta verulega vernd vátryggingartaka og vátryggðra auk þess að stuðla að traustari fjármálamarkaði. Allur rammi í kringum vátryggingastarfsemi verður efldur með þessu frumvarpi þar sem reglur verða ítarlegri og grunnur að starfsemi vátryggingafélagsins verður sniðinn að þeirri áhættu sem það mun standa frammi fyrir.
Önnur áhrif frumvarpsins eru að reglur um vátryggingastarfsemi hér á landi verða samræmdar að reglum EES-svæðisins og öll samvinna og eftirlit á svæðinu verður þar með einfaldara og hagkvæmara.
Ég tel mikilvægt að frumvarpið nái fram að ganga til að styrkja starfsemi vátryggingafélaga hér á landi. Mikilvægt er að neytendur hafi aðgang að upplýsingum um starfsemi vátryggingafélaga og að það liggi ljóst fyrir hvaða aðferðir Fjármálaeftirlitið notar til að stuðla að því að eftirlit með vátryggingafélögum sé fullnægjandi á öllum tíma. Slíkt gagnsæi eykur trúverðugleika á vátryggingamarkaði og gerir hann traustari í augum neytenda.
Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að aflokinni þessari umræðu.