145. löggjafarþing — 66. fundur,  25. jan. 2016.

varamaður tekur þingsæti.

[15:02]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um að 8. þm. Suðvest., Ögmundur Jónasson, geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hann 1. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Rósa Björk Brynjólfsdóttir.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir hefur tekið sæti áður á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.