framkvæmd þingsályktunar um að draga úr plastpokanotkun.
Virðulegi forseti. Burðarpokar úr plasti eru mikið notaðir vegna þess hvað þeir eru þunnir, léttir og endast vel. Ending plastpoka skapar þó mestu umhverfisáhrifin af notkun þeirra vegna þess að þeir brotna afar hægt niður í umhverfinu. Þótt þeir séu jafnvel einungis notaðir einu sinni geta þeir verið í umhverfinu í 100 ár, eins og kom fram hjá frummælanda. Þeir brotna niður í míkróplast sem síðar getur borist í jarðveg, vötn og sjó og er skaðlegt fyrir lífríki, fæðukeðju og vistkerfi. Plastnotkun skapar því mikla mengun og getur haft í för með sér mikinn kostnað fyrir bæði ríki og atvinnugreinar. Í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eru nú þrjú úrlausnarefni á þessu sviði til umfjöllunar.
Í fyrsta lagi hefur Umhverfisstofnun unnið tillögu um hvernig hægt sé að vinna að stefnu og aðgerðum sem miða að því að draga úr plastpokanotkun á Íslandi.
Í öðru lagi hefur verið samþykkt breyting á tilskipun nr. 94/62 EB um minnkun á notkun léttra burðarplastpoka sem leggur skyldur á herðar aðildarríkja að minnka notkun á hefðbundnum plastpokum. Þetta eru bæði svokallaðir hefðbundnir innkaupapokar og grænmetispokar.
Í þriðja lagi var samþykkt á Alþingi í júlí síðastliðnum þingsályktun um að draga úr plastpokanotkun. Þar segir að Alþingi álykti að fela umhverfis- og auðlindaráðherra að finna leiðir til að minnka plastpokanotkun hér á landi og við val á leiðum verði litið til annarra ríkja í Evrópu þar sem markvisst hefur verið dregið úr plastpokanotkun.
Ráðherra hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að móta tillögur að aðgerðum um hvernig draga megi úr notkun plastpoka með árangursríkum hætti. Starfshópurinn skal hafa að markmiði að dregið verði úr notkun burðarplastpoka í áföngum þannig að þeir verði 90 plastpokar á einstakling fyrir árslok 2019 og 40 plastpokar fyrir árslok 2025.
Við vinnuna verður meðal annars horft til, eins og áður segir, þingsályktunar um að draga úr plastpokanotkun sem samþykkt var á Alþingi í júlí síðastliðnum. Í öðru lagi eru það breytingar á EES-samningnum vegna plastpokanotkunar og í þriðja lagi tillögur Umhverfisstofnunar um hvernig hægt væri að vinna stefnu og aðgerðir sem miða að því að draga úr plastpokanotkun hér á landi.
Hópurinn skal jafnframt leggja mat á hvort og þá hvaða stjórntæki gætu gagnast við að ná markmiðinu, til dæmis bann við notkun plastpoka að einhverju eða öllu leyti, eða skattlagning plastpoka, niðurgreiðslur á umbúðum sem kæmu í stað þeirra, notkun hagrænna hvata til grænnar nýsköpunar í plastiðnaði o.s.frv. Starfshópnum ber enn fremur að skoða staðgengil fyrir plastpoka sem og aðgang almennings og atvinnulífs að leiðum sem bætt geta hringrásarkerfi. Loks skal starfshópurinn meta hugsanleg kostnaðaráhrif þeirra aðgerða sem lagðar eru til og tilnefna ábyrgðaraðila fyrir hverja aðgerð.
Í starfshópnum munu sitja fulltrúar frá Umhverfisstofnun, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum iðnaðarins og Samtökum verslunar og þjónustu og umhverfis- og auðlindaráðuneyti, sem mun stýra þessum starfshópi. Starfshópnum ber að kalla þá aðila til samráðs sem að málinu þurfa að koma, svo sem neytendasamtök, fulltrúa lágvöruverslana og fulltrúa gámaþjónustuaðila og sorpsamlaga. Starfshópurinn skal skila skýrslu til ráðherra með tillögum að aðgerðum eigi síðar en 15. júní 2016.
Ég vona svo sannarlega að boð eða jafnvel bönn um minni notkun á plasti kalli fram hvata til hugsuða eða frumkvöðla um nýja tækni á umbúðum. Það er einmitt tími núna til að bregðast við til verndar lífríki á bæði landi og sjó.