145. löggjafarþing — 68. fundur,  27. jan. 2016.

störf þingsins.

[15:24]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Ég ætlaði að ræða umræðuna og andrúmsloftið í þjóðfélaginu og í samhengi við það að draga fram þær miklu áskoranir sem við stöndum í raun og veru frammi fyrir. Við erum í dauðafæri sem þjóðfélag að færa stöðu þjóðarbús okkar til betri vegar á sama tíma og við erum minnt á að undirliggjandi gremja og reiði er í þjóðfélaginu. Í ljósi síðustu upplýsinga í Borgunarmálinu kemur upp réttlát reiði, skulum við segja, þar sem þolinmæði þjóðarinnar gefur sig. Nú eru stöðugleikaframlög þegar byrjuð að streyma inn í Seðlabankann og það er mjög mikilvægt að við náum sátt og samstöðu um hvernig við förum með þær eignir, hvernig við höldum á þeim, að sátt sé um þá umsýslu, ferli, ábyrgð og ábyrgðarkeðju sem utan um þessa eignarhluti þarf að vera og hvernig við förum með þá í framhaldinu. Þegar við setjum það í samhengi við upplýsingar um spillingu er það viðhorf og tilfinning þjóðarinnar að við búum við meiri spillingu á Íslandi en aðrir á Norðurlöndunum. Það er alvarlegt mál. Það er spurning um traust og virðingu Alþingis hvernig við bregðumst við, hvernig við höldum á þessum málum og hvernig ásýnd við sköpum í framhaldinu. Það verður ekki nema við reynum að ná hér samstöðu og sátt í þessum afgerandi málum, ekki bara okkar í millum heldur einnig með þjóðinni.


Efnisorð er vísa í ræðuna