félagsþjónusta sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir fyrirspurnina.
Varðandi þau svör sem við ræddum á mánudaginn í munnlegri fyrirspurn um rétt fólks til örorku á grundvelli búsetu, þá er einmitt að mínu mati mjög mikilvægt að sett sé skýrt í lögin að viðkomandi einstaklingur, sem yrði skertur, verður að vera vinnufær. Það verður að liggja fyrir mat frá sérfræðingum um að viðkomandi sé fær um að þiggja störf. Það gildir að sjálfsögðu ekki um fólk sem hefði, ef það hefði uppfyllt búsetuskilyrðin, átt rétt á að fá greiðslur hjá almannatryggingum. Það er mikilvægt að það sé þá skýrt í nefndaráliti nefndarinnar.
Síðan er það þannig að við höfum unnið fjölmörg mál í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga. Staða sveitarfélaganna hefur verið og er að mörgu leyti erfið. Það hefur komið ítrekað fram í kostnaðarmati hjá þeim að oft er erfitt fyrir þau að meta það sérstaklega þegar einhverjar tillögur eru sem munu draga úr kostnaði hjá þeim, hversu mikil þau áhrif verða. Hins vegar var viðurkennt að þetta gæti leitt til einhvers konar sparnaðar en hvað snýr að framfærsluaðstoðinni sjálfri, en þá fjármuni þyrfti hins vegar að nota til að tryggja virkniúrræðin sem eiga að vera í boði fyrir viðkomandi einstaklinga.
Varðandi síðan tölulegar greiningar eða gögn hefur komið fram við endurskoðun á félagsþjónustulögunum og lögum um málefni fatlaðs fólks að verulega skortir á samræmingu gagna og gagnavinnslu á milli sveitarfélaganna. Það er núna verið að vinna í því að tryggja það að meira samræmi sé á milli þannig að hægt sé að bera saman betur hvers konar aðstoð sveitarfélögin veita. Þetta endurspeglast til dæmis í því að mismunandi forsendur eru á milli sveitarfélaganna til að komast á biðlista eftir félagslegu húsnæði. Einn einstaklingur í einu sveitarfélagi getur komist inn á (Forseti hringir.) biðlista þar, svo flytur hann í annað sveitarfélag, þá eru (Forseti hringir.) allt önnur skilyrði varðandi þá biðlista. Þetta er eitt af því sem við þurfum að vinna að því að bæta.