félagsþjónusta sveitarfélaga.
Herra forseti. Jú og það var eitt af því sem ég kom ekki inn á í máli mínu en það er nákvæmlega þetta. Ráðuneytið veit að það viðgangast skilyrðingar á fjárhagsaðstoð. Það er talið mjög hæpið að það standist núgildandi lög. Og hvað gerir ráðuneytið? Það býðst bara til þess að breyta lögunum.
Það lítur þá svo á að lögin eigi ekki að hafa eitthvert verndarhlutverk fyrir borgarana heldur séu þrándur í götu sveitarfélaganna sem vilja nota peningana í annað.
Vissulega þarf að vinna með fólki. Margir koma þarna inn tímabundið og þurfa enga aðstoð nema fjárhagsaðstoð um ákveðinn tíma. Aðrir þurfa að fá umfangsmikla aðstoð við að komast aftur inn í daglega rútínu og eðlilegt líf. Til þess eru sérfræðingar í störfum hjá sveitarfélögunum.
En við vitum ekkert hvað verður um þá sem falla út af fjárhagsaðstoð og þá langar mann til að vita: Fór þetta fólk að vinna? Var þetta fólk í vinnu áður sem ekki var gefin upp? Fór þetta fólk enn lengra út á jaðar samfélagsins? Erum við að skapa enn verri skilyrði fyrir þessa einstaklinga?
Auðvitað er lagt upp með að þetta eigi að vera svo gott fyrir alla en við fáum engan rökstuðning um að svo sé. Og þegar við spyrjum hvað verði um þetta fólk þá yppta þau bara öxlum. Það er virðingin fyrir velferð fólks.