145. löggjafarþing — 68. fundur,  27. jan. 2016.

félagsþjónusta sveitarfélaga.

458. mál
[19:13]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Hér ræðum við frumvarp hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga.

Við erum í raun að ræða frumvarp sem fjallar um grundvallarstefnubreytingu á framfærslukerfinu í þeirri mynd sem við þekkjum það. Megininntakið í þessu frumvarpi er að heimila sveitarfélögum að setja í reglur sínar um veitingu fjárhagsaðstoðar skilyrði fyrir því að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit.

Við erum búin að ræða þetta fram og til baka í ræðustól Alþingis og hér hafa komið fram efasemdir um þetta frumvarp líkt og fram hefur komið í umsögnum um frumvarpið sem sendar hafa verið inn.

Mig langar aðeins til að velta vöngum yfir þessari virku atvinnuleit og þeim skilyrðum sem hér er verið að setja inn í frumvarpið en eins og ég segi er verið að gera grundvallarstefnubreytingu á framfærslukerfinu eins og við þekkjum það. Uppfylli viðkomandi einstaklingur sem metinn hefur verið að hluta vinnufær ekki skilyrði um virka atvinnuleit þá verður, ef frumvarpið verður samþykkt, hægt að skerða grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar um allt að helming.

Við skulum rifja það upp að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar í Reykjavík, þar sem hún er hæst, frú forseti, er 174.952 kr. á mánuði. Samkvæmt frumvarpinu verður hægt að skerða þá upphæð um allt að helming sem gerir 87.476 kr. Það verður sú upphæð sem einstaklingur á að geta framfleytt sér á ef viðkomandi er ekki í virkri atvinnuleit og á þá um leið að geta lifað af þeirri upphæð í allt að sex mánuði.

Þetta er breyting sem á að grípa fólk sem er í einna veikustu stöðunni í samfélagi okkar. Hér er verið að umbylta kerfinu um félagsþjónustu sveitarfélaga í þá veru að búa til enn erfiðari félagslega stöðu einstaklinga sem búa nú þegar við afar knöpp og erfið kjör, bæði fjárhagslega og um leið félagslega. Við vitum öll að fáir velja sér það sem lífsviðurværi og velja sér þá félagslegu stöðu og hlutskipti í lífinu að þiggja fjárhagsaðstoð af sveitarfélögum.

Hér er því miður verið að búa til regluverk sem þrengir enn frekar að þessum hópi og getur minnkað möguleika fólks sem býr við þessar aðstæður til að verða virkara og komast hnarreist út á vinnumarkaðinn og verða um leið virkari þjóðfélagsþegnar og fjárhagslega styrkari og sterkari.

Eins og margoft hefur komið fram er fólk sem á rétt til fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga fólk sem er ekki með aðrar tekjur, á ekki rétt á öðrum tekjum. Þetta er sú upphæð sem það býr við eins og reglurnar eru í dag og frumvarpið snýst um að skerða. Þetta fólk, þessi hópur, reiðir sig á þetta grunnöryggisnet samfélagsins. Ég hef miklar efasemdir, og deili þeim með öðrum þingmönnum og umsagnaraðilum, um að hótunin sem býr í þessu frumvarpi ef af verður og ef það verður samþykkt um að skerða fjárhagsaðstoð fólks sé skilvirkasta leiðin til að efla virkni þess og aðstoða það í bágri fjárhagslegri og félagslegri stöðu.

Ég verð að játa að ég trúi frekar á aðrar jákvæðari og uppbyggilegri leiðir til að koma fólki inn á atvinnumarkaðinn. Mér finnst að þar ætti áhersla velferðarráðherra að vera, þ.e. á að efla fólk til þess að það geti um leið orðið virkari þjóðfélagsþegnar. Það gæti verið með hvatningu og stuðningi, sálfræðiaðstoð, með því að efla fjármuni inn í þá þætti málsins í stað þess að beita hótunum um skerðingu.

Mig langar líka um leið að velta vöngum yfir því í ræðustól Alþingis að í 1. gr. frumvarpsins er verið að bæta við nýrri málsgrein sem hljóðar svo:

„Ráðherra gefur árlega út leiðbeiningar til sveitarstjórna, í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, um framkvæmd fjárhagsaðstoðar auk viðmiðunarfjárhæða fyrir fjárhagsaðstoð.“

Með öðrum orðum er í frumvarpinu verið að leggja vald í hendur ráðherra, að vísu í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, um viðmiðunarfjárhæðina. Það tel ég ekki vera rétt eða að minnsta kosti efni til þess að ræða mun nánar, sér í lagi vegna þess að í frumvarpinu er ekkert fjallað nánar um þessa viðmiðunarfjárhæð, hvort að samræma eigi fjárhæðina eða hækka hana eða hvernig við erum að fara inn í breytingar á viðmiðunarfjárhæðinni.

En mér finnst líka annað. Andi þessa frumvarps hryggir mig, verð ég að segja. Ég sé ekki annað en að þarna sé eingöngu verið að hugsa um beinan fjárhagslegan ávinning af því að skerða fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, þ.e. skerða fjárhagsaðstoð sveitarfélaga til einstaklinga með því að þrengja og minnka þessa upphæð. Um leið er drifkraftur þessa frumvarps fjárhagslegur en ekki út frá velferðarsjónarmiðum sem ég hefði haldið að velferðarráðherra ætti að einblína á og beina öllum sínum kröftum að, að virkja og efla þennan hóp sem er eins og fram hefur komið í máli annarra þingmanna sá hópur sem reiðir sig á fjárhagsaðstoð, er ekki með neinar aðrar tekjur, reiðir sig á það grunnöryggisnet sem við höfum þó byggt upp sátt um að sé til staðar í samfélagi okkar.

Mér finnst það alvarlegur hlutur ef við ætlum að nota hótun um minni fjárframlög sem leið til þess að virkja fólk. Í reglugerð með frumvarpinu er vísað til verkefnis Hafnarfjarðarbæjar en mér finnst að við þurfum nánari rannsókn og viðmiðun á því hvernig þessar leiðir hafa reynst í öðrum löndum, löndum sem við höfum borið okkur saman við og löndum sem við ættum að líta til þegar við horfum á félagslega þjónustu og hvernig hún getur gagnast fólki til að byggja sig upp en ekki draga það niður og draga úr möguleikum þess til að vera virkt í samfélaginu.

Ég vonast til þess að þegar þetta frumvarp kemur aftur inn til nefndar verði gerðar á því breytingar sem lúta að því að virkja fólk frekar en að hóta því með skerðingarákvæðum.