norrænt samstarf 2015.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni hlý orð í minn garð nú sem áður, hann virðist ekki klikka á því þegar hann mætir í andsvör. Ég vil taka undir með honum því að ég held að það sé rétt hjá hv. þingmanni, að þetta hafi verið Íslendingum öllum til sóma. Ég var eingöngu starfsmaður á plani og fékk þetta mál og það var vilji til þess að ýta því út af borðinu, því miður. Það er rétt að málið kom upphaflega frá vinstri grúppunni en að ná þessari sátt og að ná að fara með jafn umdeilt mál í gegnum Norðurlandaráð tel ég að hafi verið góður sigur fyrir okkur öll í Norðurlandaráði og sérstaklega okkur Íslendinga sem höfum áður ályktað í svipaða veru.