145. löggjafarþing — 69. fundur,  28. jan. 2016.

norrænt samstarf 2015.

463. mál
[13:02]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mér finnst alveg rosalega mikilvægt að við gefum þeim enda þessara stjórnsýsluhindrana sérstakan gaum því að alla vega eins og ástandið er á Íslandi býr fólk, sem meðal annars hefur búið annars staðar á Norðurlöndunum og fær þess vegna búsetuskertar greiðslur á Íslandi, við afar bág kjör og þetta er sá hópur lífeyrisþega sem er hvað verst staddur fjárhagslega. Einmitt vegna þess að ég held að við séum öll sammála um að við viljum hafa hreyfanleika á milli Norðurlandanna og á hinum norræna vinnumarkaði þá verðum við að taka þetta mál föstum tökum. Það gleður mig að heyra ef verið er að ræða þetta mikið á þeim vettvangi. Mig langar því að lokum að beina því til fulltrúa Íslandsdeildar Norðurlandaráðs (Forseti hringir.) að setja sig inn í þetta mál og láta sig það varða því að þetta snýst um það hvernig hópur fólks í íslensku samfélagi á að geta framfleytt sér.