145. löggjafarþing — 72. fundur,  2. feb. 2016.

Vestnorræna ráðið 2015.

466. mál
[16:34]
Horfa

Flm. (Unnur Brá Konráðsdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir skýrslu Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins fyrir árið 2015.

Vestnorræna ráðið er þingmannasamstarf þjóðþinganna í Færeyjum, Grænlandi og Íslandi sem stofnað var árið 1985. Í ráðinu sitja átján þingmenn, sex frá hverju aðildarríki. Markmið ráðsins er að starfa að hagsmunum Vestur-Norðurlanda, vernda auðlindir og menningararfleifð svæðisins, stuðla að samvinnu ríkisstjórna og landsstjórna landanna þriggja um mikilvæg mál og vera þingræðislegur tengiliður milli vestnorrænna samstarfsaðila.

Í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins sátu hv. þm. Vigdís Hauksdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Páll Valur Björnsson og Páll Jóhann Pálsson fyrri hluta tímabilsins. Í haust vék Vigdís Hauksdóttir sæti sem aðalmaður og inn kom Þorsteinn Sæmundsson frá Framsóknarflokknum. Ritari Íslandsdeildar er Vilborg Ása Guðjónsdóttir og vil ég færa henni þakkir fyrir gott starf í þágu ráðsins.

Fundir Vestnorræna ráðsins á árinu 2015 voru tveir eins og venjulega. Þemaráðstefna var í Aasiaat á Grænlandi í janúar og síðan ársfundur ráðsins í Runavík í Færeyjum í ágúst.

Á þemaráðstefnunni í Aasiaat á Grænlandi var fjallað um hvernig hægt væri að auka samstarf milli landanna þriggja á norðurslóðum og þá sér í lagi möguleikann á fríverslunarsamningi milli landanna og sérstöku vestnorrænu viðskiptaráði.

Við vorum með marga góða gesti á ráðstefnunni, m.a. Sigríði Huld Blöndal, framkvæmdastjóra skrifstofu Arctic Circle, sem ræddi um möguleika Vestur-Norðurlanda á norðurslóðum til lengri tíma litið út frá sjónarhorni þeirra sem tilheyra ekki svæðinu. Þá var Egill Þór Níelsson, framkvæmdastjóri Kínversk-norrænu norðurslóðamiðstöðvarinnar við Heimskautastofnun Kína, með okkur og fjallaði um stefnu Vestur-Norðurlanda á norðurslóðum út frá vestnorrænu sjónarmiði með áherslu á samstarfsmöguleika og einnig mögulega hagsmunaárekstra. Þess ber að geta að Egill Þór Níelsson hefur verið ráðinu til ráðgjafar og m.a. unnið fyrir okkur skýrslu um þessi mál.

Við vorum með marga aðra góða gesti, m.a. þrjá ráðherra. Í fyrsta lagi Jørgen Niclasen, þáverandi fjármálaráðherra Færeyja, sem ræddi um mikilvægi samstarfs þjóðanna þriggja, Sigurð Inga Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Íslands, sem talaði um hvað það væri sem sameinaði löndin þrjú og lagði áherslu á að við þyrftum að koma á formlegum fundum milli ráðherra til að stjórnmálin gætu skapað þann ramma sem nauðsynlegur er. Þá var jafnframt með okkur Vittus Qujaukitsoq, sem var á þeim tíma utanríkisráðherra Grænlands, en hann ræddi aðallega afstöðu Grænlendinga til vestnorræns fríverslunarsamnings. Þess ber að geta að það kom skýrt fram í máli Grænlendinganna á fundinum að þeir hefðu ekki áhuga á að gerast aðilar að Hoyvíkursamningnum svokallaða sem er samningur á milli Íslands og Færeyja. Þeir hafa meiri áhuga á því að það verði skoðað að gera nýjan þríhliða samning eða samning á milli Grænlands og Færeyja annars vegar og Grænlands og Íslands hins vegar. Þetta var skýr niðurstaða og það er alveg ljóst að við þurfum að vinna að því í framhaldinu að fara þá leið.

Við höfðum í aðdraganda fundarins skipað nefnd þar sem í sátu forsætisnefnd ráðsins og þrír þingmenn, þ.e. einn frá hverju landi, til þess að fara aðeins yfir norðurslóðamálin. Ég verð að segja að það starf gaf góða raun. Ég vonast svo sannarlega til að ráðið geri þetta í auknum mæli, skipi undirnefndir sem vinni á milli funda við að undirbúa þau mál sem helst eru á döfinni.

Ársfundur ráðsins fór fram í Runavík í Færeyjum 10.–13. ágúst síðastliðinn. Þetta var einn stærsti fundur í sögu ráðsins vegna þess að þetta var ekki aðeins hefðbundinn ársfundur heldur var líka um að ræða afmælishátíð ráðsins sem fagnaði 30 ára afmæli.

Á afmælishátíðinni vorum við með góða gesti, m.a. forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, sem var sæmdur heiðursverðlaunum ráðsins sem veitt voru í fyrsta sinn. Forsetinn hlaut þau fyrir að leggja áherslu á sterkari stöðu vestnorræna svæðisins á norðurslóðum og hvetja Vestnorræna ráðið til að auka sýnileika sinn alþjóðlega og vekja athygli á vestnorræna svæðinu í samræðum sínum við leiðtoga annarra ríkja, viðskiptalífið og fræðimenn. Ég held að óhætt sé að segja að Vestnorræna ráðið eigi fáa jafn góða vini og forseta Íslands sem ræðir á alþjóðavettvangi mikið um verklag okkar og þau verkefni sem ráðið tekur fyrir.

Á afmælisfundi ráðsins í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn í Færeyjum fluttu margir góðir gestir ávarp, m.a. forseti Íslands, hæstv. forsætisráðherra Íslands, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Kim Kielsen, formaður heimastjórnar Grænlands, og sú sem hér stendur sem formaður Íslandsdeildar og varaformaður Vestnorræna ráðsins. Forseti Íslands fór yfir þá sterku stöðu og nýju stöðu sem vestnorrænu ríkin hefðu öðlast vegna mikilvægis norðurslóða. Það er ljóst að við í Vestnorræna ráðinu verðum að taka þessa stöðu alvarlega og einbeita okkur svolítið að því að gera ráðið sýnilegra og vekja athygli á því starfi sem fer fram í því.

Ljóst er að sérstaða ráðsins felst aðallega í því að við höfum það sterka vopn sem rætt var fyrr í dag að við getum lagt ályktanir okkar sem við samþykkjum á ársfundum fyrir þjóðþingin þrjú og fáum þær samþykktar alla jafna í öllum löndunum þremur. Ríkisstjórnir landanna þriggja eru þá með sameiginlegt verkefni og vinna að því að koma ályktunum ráðsins í framkvæmd.

Þau verkefni sem munu brenna heitast á Vestnorræna ráðinu á næstu árum eru fríverslun, samgöngur, málefni hafsins og norðurslóðir. Ég held að óhætt sé að segja að á þessu kjörtímabili ráðsins þá hefur áherslan legið mjög á norðurslóðamálum. Það er ljóst að í breyttri stöðu á norðurslóðum felast bæði tækifæri og áskoranir og ég vonast svo sannarlega til þess að ráðið muni gera sig gildandi í þeirri umræðu.

Ráðið hafði mikið umleikis á liðnu ári. Við tókum virkan þátt í Arctic Circle ráðstefnunni sem fór fram að vanda á Íslandi og við vorum þar með mikla dagskrá. Við vorum með sérstaka málstofu þar sem rætt var um lýðræði á norðurslóðum og einnig tvo hádegisverðarfundi, annan með þeim kjörnu fulltrúum sem sóttu ráðstefnuna og síðan fund með aðilum úr viðskiptalífinu á Vestur-Norðurlöndum. Þann fund sóttu reyndar líka fulltrúar frá Bandaríkjunum.

Ástæðan fyrir því að við ræðum lýðræði á norðurslóðum er sú að við erum kjörnir fulltrúar fólksins sem býr á svæðinu, býr á norðurslóðum. Okkur þykir það vera skylda okkar að halda hagsmunum íbúa svæðisins á lofti og reyna að hvetja kjörna fulltrúa af svæðinu til þess að skipta sér af norðurslóðamálum, skipta sér að því hvað ríkisstjórnir landanna eru að ákveða, hvað embættismennirnir eru að segja og eins hvað stórfyrirtækin sem eru að hasla sér völl á svæðinu eru að gera.

Þó að það sé ekki hluti af þessari ársskýrslu þá gerðist það nú um helgina á þemaráðstefnu ráðsins í Grindavík að undirritaður var samstarfssamningur milli Vestnorræna ráðsins og Arctic Circle um að ráðið gerðist aðili að Arctic Circle. Í því felst að við verðum fastur þáttur í stóru ráðstefnunni í Hörpu á hverju ári. Við höfum eitthvað um það að segja hver efnistökin á fundum Arctic Circle eru og tökum að okkur þá skyldu að leggja eitthvað til málanna. Þetta er gríðarlega stórt skref í því að tryggja að Vestnorræna ráðið skapi sér fastan sess í norðurslóðamálum.

Stóra fréttin annars af þeirri ráðstefnu er sú að það kom fram í ávarpi forseta Íslands að nú verða tveir fastir punktar í Arctic Circle starfinu, þ.e. stóra ráðstefnan í Hörpu hvert ár og síðan verður jafnframt fastur fundur til skiptis í Grænlandi og Færeyjum annað hvert ár. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur sem störfum á vestnorræna svæðinu að sjá að Arctic Circle og forseti Íslands leggja áherslu á með þessari ákvörðun að Vestnorræna svæðið er í rauninni þungamiðjan í norðurslóðamálum. Af þessu erum við afskaplega stolt og hlökkum auðvitað til þess að taka þátt í því að beita okkur fyrir ákveðnum efnistökum á fundum Arctic Circle.

Auk þeirra föstu funda sem ég hef nú þegar nefnt þá funduðum við að sjálfsögðu með þingmönnum frá Evrópusambandinu líkt og við gerum árlega. Þar var farið yfir þau mál sem helst brenna á Vestnorræna ráðinu í samstarfi við Evrópusambandið. Jafnframt tók sú sem hér stendur þátt í tveim fundum í Alaska fyrir hönd ráðsins. Annars vegar ráðstefnu Arctic Circle um hafnir og siglingaleiðir í Anchorage í ágúst. Þar átti ég kost á því að sitja ásamt forseta Íslands viðskiptafundi m.a. með Bill Walker, ríkisstjóra Alaska, Fran Ulmer, ráðgjafa utanríkisráðherra Bandaríkjanna um málefni norðurslóða, og Nils Andreassen, forstöðumanni Institute of the North. Á þeim fundi var öðrum varaformanni ráðsins boðið að taka þátt í Arctic Energy Summit ráðstefnunni í Fairbanks í Alaska sem fór fram 27. september. Þar hélt ég erindi og tók þátt í pallborði um sjálfbæra þróun og svæðisbundna áætlunargerð á sviði orkumála og náði að kynna þau verkefni og þær ályktanir sem ráðið hefur fjallað um í þessu efni.

Herra forseti. Vestnorræna ráðið hefur skýra stefnu og ég vonast til þess að sjá á næstu árum að við beitum okkur enn frekar í því að styrkja lýðræði á norðurslóðum með því að halda áfram þeirri umræðu sem við höfum þegar hafið við aðra kjörna fulltrúa á norðurslóðum. Ég vil líka nefna, af því að það var rætt í umræðunum fyrr í dag hvernig mætti styrkja umræðuna um norðurslóðamál í þinginu, að sú hugmynd hefur komið upp, m.a. á þeirri þemaráðstefnu sem ég vitnaði til og fór fram um helgina á vegum Vestnorræna ráðsins í Grindavík, hvort kominn sé tími til þess að þingin stofni sérstakar nefndir um norðurslóðir. Ég held að það sé kannski aðeins of viðurhlutamikið að ráðast í það strax. Sú hugmynd kom upp fyrr í dag að utanríkismálanefnd mundi taka aukið frumkvæði í því að ræða norðurslóðamálefni á sínum vettvangi. Það er ein hugmynd. Önnur hugmynd væri að vera með einhvers konar samstarfsnefnd fulltrúa Vestnorræna ráðsins, utanríkismálanefndar, Norðurlandaráðs og þingmanna nefndarinnar um norðurslóðir til þess að fara yfir þau mál sem helst eru á döfinni og kanna hvort einhver þeirra þarf að leggja fyrir þingið.

Að síðustu langar mig að geta þess að Vestnorræna ráðið hefur sótt um áheyrnaraðild að Norðurskautsráðinu. Það er ljóst að við þurfum á næsta ári að vinna talsvert í því að afla þeirri umsókn fylgis. Bandaríkin fara nú með formennsku í Norðurskautsráðinu og gefið hefur verið út að öllum afgreiðslum umsókna verði frestað fram í maí 2017, þá eiga Bandaríkjamennirnir að skila af sér, og þá muni verða tekin afstaða til þessara umsókna. Mikilvægur liður í því að fjalla um umsókn okkar og afla henni fylgis er að hitta fulltrúa þeirra aðila sem taka þá ákvörðun. Ég vonast svo sannarlega til þess að forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins leggi kraft í það á komandi mánuðum að kynna ráðið og vekja athygli á umsókn okkar. Liður í því er að fulltrúar ráðsins munu sækja ráðstefnur Arctic Circle, bæði núna í mars í Québec og eins í Nuuk vorið 2016. Á þessum fundum hittum við aðila sem geta hjálpað okkur í baráttunni og við vonumst svo sannarlega til þess að það skili allt saman árangri.

Herra forseti. Ráðið var með mikla starfsemi árið 2015 og miðað við andann sem ríkti í herbúðum okkar um liðna helgi geri ég ráð fyrir því að þetta ár sem nú er hafið verði enn öflugra í starfi okkar.