145. löggjafarþing — 72. fundur,  2. feb. 2016.

höfundalög.

333. mál
[17:31]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég kveð mér hljóðs til þess að gera grein fyrir fyrirvörum mínum við frumvarpið og nefndarálitið. Þeir eru þríþættir. Í fyrsta lagi geri ég sama fyrirvara og hv. þm. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir og hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, sem lýtur að því að takmarka möguleika fatlaðs fólks á notkun hljóðbóka við stofnun með þeim hætti sem kveður á um í lokamálslið 9. gr. frumvarpsins. Enn fremur set ég þann fyrirvara að eftir eigi að innleiða Evróputilskipun 2014/26/ESB, það ætti helst að gerast áður en svona frumvarp er samþykkt með lögum, en það er auðvitað hluti af því hvernig þessi málaflokkur þróast hér sem og erlendis. En mér og okkur í Pírötum þótti mikilvægt að halda þeim fyrirvara til haga. Síðast en ekki síst hef ég fyrirvara á því sem kemur fram í nefndarálitinu, sem ég er ekki í sjálfu sér ósammála, um að beina því til ráðuneytisins að skoða sérstaklega ákvæði um lögbann. Fyrirvari minn lýtur að því að ég er sammála því að ákvörðun um lögbann eigi ekki heima hjá sýslumanni heldur dómstóli ef svo ber undir. Hins vegar er ég í grundvallaratriðum á móti slíku ákvæði yfir höfuð hvort sem málsmeðferðin er hjá sýslumanni eða í einhverri hraðmeðferð hjá dómstólum. En það er umræða sem kemur til seinna, væntanlega ef ráðuneytið bregst við þessu með því að leggja fram sérstakt frumvarp, þá á sú umræða auðvitað heima þar.

Mér þótti mikilvægt að halda þessu til haga vegna þess að ég er á móti því að færibandavæða lokanir á netinu hvort sem það vald liggur hjá dómstólum eða sýslumanni. Mér þykir hins vegar mjög óeðlilegt að þetta vald sé hjá sýslumanni vegna þess að um er að ræða heldur ríkt inngrip og þess vegna á það með réttu heima hjá dómstólum. Að mínu mati eru þær athugasemdir að það vald eigi frekar heima hjá dómstólum alveg réttar, en það er ekki endilega þar með sagt að það sé með öllu réttlætanlegt. En það er umræða sem kemur seinna og hef ég þá gert grein fyrir þeim fyrirvörum sem ég hef við frumvarpið.