145. löggjafarþing — 73. fundur,  3. feb. 2016.

störf þingsins.

[15:33]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Annaðhvort hefur viðhald íbúðarhúsnæðis minnkað um marga milljarða króna á síðasta ári eða þá að skattsvik hafa aukist um marga milljarða eftir að ríkisstjórnin dró úr endurgreiðslum virðisaukaskatts vegna viðhaldsframkvæmda við íbúðarhúsnæði.

Það blasir við hverjum sem kynnir sér þær tölur sem birtar voru í Fréttablaðinu í morgun, og í framhaldi af umræðum mínum við fjármálaráðherra á mánudaginn um skattsvik, að það var óskynsamlegt af ríkisstjórninni að hafa ráðist í þá skattahækkun sem fólst í að minnka endurgreiðslur sem fólk sem er að halda við húsnæði sínu fær á virðisaukaskatti.

Allir vinna hét átakið sem síðasta ríkisstjórn beitti sér fyrir og tryggði það að fólk sem er að endurbæta húsnæði sitt fær allan virðisaukaskatt af vinnu iðnaðarmanna á staðnum endurgreiddan. Þetta gerði að verkum að menn hættu í stórum stíl að vera með svarta atvinnustarfsemi í viðhaldi á íbúðarhúsnæði og fóru að telja þessar tekjur fram. En ekki bara þessar tekjur. Fyrir vikið voru líka taldar fram alls kyns aðrar tekjur eins og vinna á verkstæðum, efniskaup og aðrir slíkir hlutir og skattskil urðu miklu betri.

Það er alveg óskiljanlegt að ríkisstjórn sem telur sig hafa svigrúm til þess að lækka skatta á stórútgerðina og á efnuðustu heimilin í landinu hafi séð sérstaka ástæðu til þess að hækka skatta á fólk sem er að halda við húsnæði sínu með þeim afleiðingum að svört atvinnustarfsemi stóreykst og ríkissjóður tapar á öllu saman þegar upp er staðið og dæmið gert upp.


Tengd mál

Efnisorð er vísa í ræðuna