145. löggjafarþing — 73. fundur,  3. feb. 2016.

dagur helgaður fræðslu um mannréttindi barna.

26. mál
[17:44]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Ég ætla að taka aðeins þátt í umræðunni. Ég tilheyri líka hópi talsmanna barna og er afar stolt að fá að fylla þann hóp. Ég tek undir með hv. 1. flutningsmanni að þetta er eitthvað sem við reynum að halda á lofti eins oft og við mögulega getum. Í því samhengi er vert að minna á sérstakar umræður sem fara hér fram á morgun um skýrslu UNICEF um réttindi barna, sem kom út á dögunum, og fær hálftíma umræðu á morgun, þyrfti kannski töluvert meira, en hún fær þó alla vega það og er það mjög gott.

Hér var verið að enda við að tala um með hvaða hætti mál koma inn í þingið og hvernig það er allt saman. Ég sit í þeirri nefnd sem fær þetta mál, ég held að það fari til allsherjar- og menntamálanefndar. Ég ætla að leggja til að málið fari ekki til umsagnar. Það var sent út til umsagnar þegar mælt var fyrir því síðast. Umsagnir komu frá þeim aðilum sem hafa sérstaklega verið að helga sig mannréttindum barna og koma að þessum málum. Þær eru allar jákvæðar eins og gefur að skilja. Ég tel enga ástæðu til að við sendum málið aftur út til umsagnar með hálfs árs millibili, í máli af þessum toga sem snýst um að einn dagur á ári sé helgaður einhverri tiltekinni fræðslu. Við eigum bara að afgreiða það hratt og vel í nefndinni, koma því aftur inn í þingið og klára það. Það er mín skoðun. Ég vona að hinir flutningsmennirnir séu mér sammála. Ég kem alla vega til með að ræða það við þá sem ekki heyra þetta, og hér er 1. flutningsmaður.

Hér hefur aðeins verið rætt um hvað þetta snýst. Sem kennari heyrði ég gjarnan að börnin vissu allt um réttindi sín en ekki skyldur. Þetta snýst meðal annars um það einmitt að uppfræða börn um réttindi sín og skyldur, hvað eru forréttindi og hvað eru réttindi. Það er auðvitað afar mikilvægt að fullorðnir fái líka slíka fræðslu um mannréttindasáttmála og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna til að geta átt uppbyggilegar samræður, þó að maður geti það nú kannski án þess að kunna þá samninga utan bókar, við börn og ungt fólk, en þá er það samt sem áður mikilvægt.

Í umsögn Barnaheilla segir að barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna sem hefur eftirlit með barnasáttmálanum leggi mikla áherslu á kynningu og fræðslu um samninginn, bæði til barna og fullorðinna. Það er auðvitað grundvallaratriði að til að geta beitt réttindum og til að geta borið virðingu fyrir þeim og til að þekkja réttindi annarra þurfa allir einstaklingar að vita og þekkja sín eigin réttindi.

Það að börn fái að vita um réttindi sín gefur þeim líka aukið færi á því að átta sig á þessum mörkum. Og við viljum náttúrlega auka líkurnar á því að börn og ungt fólk beri virðingu fyrir samfélaginu og réttindum annarra þannig að það smiti út frá sér til allra. Börn eru oft gott aðhald á okkur, fullorðna fólkið, þegar kemur að því.

Það sem er kannski líka áherslan í þeirri fræðslu sem hér um ræðir og á að vera undir, þ.e. að börn og ungt fólk þekki réttindin sín eða fái þessa mannréttindafræðslu, er að það geti í rauninni auðveldað fólki að átta sig á því ef á því er brotið og brugðist sé við því, hvort sem það er í formi þess að kalla til aðstoð eða fá einhvers konar aðstoð í því formi að réttindum þeirra sé fullnægt.

Í umsögn Barnaheilla segir að mannréttindafræðsla sé forvörn í sjálfu sér. Ef börn búa við réttlæti og velferð þá séu auknar líkur á því að þau virði réttindi annarra. Það er einmitt á það bent að fullorðnir þurfi líka að fá slíka fræðslu.

Þegar verið er að tala um fræðslu af þessum toga fögnuðu því allir sem sendu inn umsagnir um málið, og vonast auðvitað til að málið nái fram að ganga. Þetta snýr fyrst og fremst að 12. gr. samningsins þar sem tekið er á því að gera sér grein fyrir stöðu og réttindum sínum sem ungur einstaklingur í samfélaginu. En allir árétta það í umsögnum sínum að fullorðnir njóti líka slíkrar fræðslu.

Svo verðum við að hafa það hugfast þó að einn dagur verði ætlaður fræðslu — við erum með alls konar svona daga, dagur íslenskrar tungu, dagur íslenskrar náttúru o.s.frv., allt fellur þetta vel að aðalnámskrám grunnskólans og ekki flókið að koma þessu inn þar og örugglega bara áhugavert og ánægjulegt uppbrot í skólastarfinu. En ég held að við verðum að hafa það hugfast að þetta má ekki vera þessi eini dagur og svo ekki meir, þ.e. einu sinni á ári. Afar mikilvægt er að það sé á öllum tímum, og ekki bara í skólakerfinu og ekki bara hjá foreldrum, heldur hjá öllum þeim sem koma að störfum með ungu fólki, með börnum og ungu fólki, að þeir þyrftu auðvitað að fá svona fræðslu, sérstaklega þeir sem starfa kannski á vegum hins opinbera, sveitarfélaga eða ríkis og hafa með börn að gera, að þeir fái fræðslu þannig að við séum að minnsta kosti trygg með það umhverfi sem við treystum börnunum okkar fyrir. Ég trúi því í rauninni, af því ég er ekki viss um að þetta sé lesið á öllum þeim stöðum sem það ætti að vera lesið, að þá mundi svona dagur í það minnsta vekja athygli á því að þetta væri til umfjöllunar og við sem sitjum á Alþingi getum svo ýtt undir umfjöllun þennan tiltekna dag og vakið athygli á honum og reynt að styðja við og borið út boðskapinn.

Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Ég er ánægð með tillöguna, en ég er að hugsa um að leggja það til sem ég sagði áðan að málið fari hratt og vel í gegnum nefndina og fái skjóta afgreiðslu, því að þetta er ekki mál sem á að þvælast um í kerfinu af því að önnur mál hafi verið fyrir eða eitthvað slíkt, heldur fyrst og fremst vegna þess að það er þverpólitískt og á ekki að koma við kaunin á nokkrum manni og afgreiða ætti málið út sem fyrst.