145. löggjafarþing — 73. fundur,  3. feb. 2016.

40 stunda vinnuvika.

259. mál
[17:53]
Horfa

Flm. (Helgi Hrafn Gunnarsson) (P):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga fyrir hönd hv. varaþingmanns Björns Levís Gunnarssonar sem er varamaður hv. þm. Birgittu Jónsdóttur. Flutningsmenn eru hv. þingmenn Björn Leví Gunnarsson, Ásta Guðrún Helgadóttir, Helgi Hrafn Gunnarsson, sá sem hér stendur, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Frumvarpið er í sjálfu sér einfalt og kveður á um að lög um 40 stunda vinnuviku verði að lögum um 35 stunda vinnuviku.

Frumvarp þetta var lagt fram á 144. löggjafarþingi. Ekki var mælt fyrir frumvarpinu þá og er það því lagt fram á ný óbreytt. Frumvarpið felur í sér þá breytingu að í hverri viku skuli ekki vera fleiri en 35 dagvinnutímar sem vinna ber á dagvinnutímabili á virkum dögum og að jafnaði skuli unnar sjö klukkustundir í dagvinnu á degi hverjum frá mánudegi til föstudags.

Þrátt fyrir að fjöldi vinnustunda á ári hafi dregist saman á undanförum árum er meðalvinnuvika á Íslandi um 40 stundir. Í skýrslum OECD sem mæla jafnvægi á milli vinnu og frítíma sést að Ísland kemur mjög illa út en þar er landið í 27. sæti af 36 þjóðum. Heildarvinnutími yfir árið er þó rétt undir meðaltali OECD-landa. Ein helsta ástæða þess að Ísland kemur illa út í vinnujafnvægismælingu OCED-landa er sú að Íslendingar vinna langa vinnudaga en heildarvinnutíminn helst tiltölulega lítill vegna þess að sumarleyfi eru í lengra lagi. Heildarvinnutími er þó um 500 klukkustundum lengri en hjá Þjóðverjum sem eru með stysta vinnutímann og rúmlega 400 klukkustundum lengri en hjá Hollendingum sem eru með næststysta vinnutímann. Tillagan mundi minnka heildarvinnutíma um um það bil 230 klukkustundir á ári sem mundi færa Ísland í 10. sætið, næst á eftir Svíþjóð sem er þó að færa sig í áttina að sex stunda vinnudegi.

Framleiðni á Íslandi er undir meðaltali landa OECD. Frakkland, sem hefur verið með 35 stunda vinnuviku síðan árið 2000, er með talsvert meiri framleiðni en er á Íslandi og landið er mun ofar í mati á jafnvægi milli vinnu og frítíma. Danmörk, Spánn, Belgía, Holland og Noregur eru efst á þessum lista, þar er vinnutíminn styttri en á Íslandi en framleiðnin meiri. Í öllum þessum löndum eru greidd hærri laun nema á Spáni. Ekki er því hægt að útskýra meiri framleiðni né hærri laun með löngum vinnudegi. Þvert á móti bendir margt til þess að styttri vinnudagur leiði til meiri framleiðni og aukinna lífsgæða.

Frumvarp þetta felur í sér að almennur vinnutími er styttur um klukkutíma á dag, þ.e. úr átta klukkutímum í sjö. Víðs vegar er verið að skoða mun róttækari breytingar. Svíar eru að gera tilraunir með sex stunda vinnudag og nýlega kynnti kynjafræðingurinn Thomas Brorsen Smidt hugmyndir um fjögurra klukkutíma vinnudag.

Markmið breytingarinnar er ekki að kjör skerðist við styttingu vinnudags og ekki er gert ráð fyrir því að vinnudagur styttist sjálfkrafa við þessa breytingu. Lög um 40 stunda vinnuviku voru sett árið 1971 en það var fyrst árið 2012 sem meðalvinnuvikan varð 40 stundir. Markmið lagabreytingar þessarar er að auka markvisst framleiðni og lífsgæði launþega á Ísland, en líkt og skýrslur OECD hafa sýnt fram á haldast ekki endilega í hendur lengri vinnutími og meiri framleiðni.

Virðulegi forseti. Ég legg til að málið fari til umfjöllunar í atvinnuveganefnd og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.