145. löggjafarþing — 74. fundur,  4. feb. 2016.

niðurstöður greiningar UNICEF á hag barna og viðbrögð stjórnvalda við þeim.

[12:16]
Horfa

Páll Valur Björnsson (Bf):

Herra forseti. Að sjálfsögðu er það skylda þjóðarinnar allrar að forgangsraða í þágu fátækra barna og eyða þeirri meinsemd sem fátækt er í íslensku samfélagi. Eins og segir í skýrslu UNICEF á ekki að skipta máli hvernig barn á Íslandi býr, hvar á landinu það á heima eða hverjir foreldrar þess eru. Barnið á að geta gengið að sömu tækifærum vísum og öll önnur börn. Slíkt jafnræði er tryggt í bæði íslensku stjórnarskránni og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem við Íslendingar höfum lögfest.

Ég skora á ráðherrann og ráðherrana alla að hafa barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem fyrsta lið á næsta ríkisstjórnarfundi og nýta allan fundinn og ef með þarf alla fundi á þessu ári til að fara vandlega yfir það hvað þurfi að gera til að gefa orðunum sínum vigt þannig að um muni fyrir fátæk börn á Íslandi.

Ég get bent þeim á að þeir gætu strax byrjað á því að tryggja að markvisst, reglulega og skipulega sé að því staðið að safna áreiðanlegum upplýsingum um stöðu og kjör barna hér á landi. Þannig og ekki öðruvísi getum við fengið skýra mynd af stöðu og þróun þessara mála. Ef við sjáum ekki vandann höfum við tilhneigingu til þess að láta eins og hann sé ekki til staðar. Við stingum höfðinu í sandinn. Og ef við sjáum ekki þróun vitum við ekki hvort við erum að ná viðunandi árangri.

Ég er, herra forseti, alls ekki einn um að vilja hvetja íslensk stjórnvöld til þess að koma því í verk að tryggja góða gagnasöfnun um stöðu íslenskra barna því að eftirlitsnefnd með barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hefur ítrekað bent íslenskum stjórnvöldum á að þau mál eru alls ekki í lagi hjá þeim.

Herra forseti. Ég fullyrði að yfirgnæfandi meiri hluti íslensku þjóðarinnar vill að forgangsraðað verði í þágu barna og alveg sérstaklega í þágu fátækra barna. Það þarf bara að hefjast handa og hafa verkin einu sinni fleiri en orðin.