145. löggjafarþing — 74. fundur,  4. feb. 2016.

félagsþjónusta sveitarfélaga.

458. mál
[14:17]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Kannski aðeins með þessa hugmyndafræði um borgaralaun — það sem mér hefur fundist áhugavert við hana er að hún hefur gengið út á lágmarksframfærslu. Þar sem hún er útfærð í anda velferðarsamfélags þá bætist síðan ofan á þá grunnframfærslu ef um er að ræða öryrkja eða atvinnulaust fólk eða annað slíkt, en það er lágmarksgrunnur sem er skilgreindur sem eðlileg framfærsla. Það er hins vegar ekki sú leið sem verið er að fara í Finnlandi eins og ég nefndi hér áðan, heldur er í raun verið að ýta til hliðar öðrum bótagreiðslum.

Hugsunin á bak við þetta er sú — og mér finnst það áhugaverð hugsun — að samfélagið muni breytast mjög mikið á næstu árum og áratugum og að við horfum upp á gagngerar breytingar á vinnumarkaði þar sem störfum ófaglærðra muni fækka með aukinni tæknivæðingu og það muni gera að verkum að við þurfum að byggja upp allt öðruvísi vinnumarkað. Þar muni hið opinbera hafa öðru hlutverki að gegna en í dag.

Þó að við séum yfirleitt alltaf að fást við verkefni dagsins í dag hér á Alþingi þá held ég að við ættum samt að fara að hugsa til lengri tíma. Vinnumarkaðurinn á eftir að breytast miklu meira en okkur órar fyrir, held ég, á næstu 20 til 30 árum með aukinni tæknivæðingu. Þá hafa hugmyndir um borgaralaun meðal annars komið inn í það að það sé leið til að hvetja fólk til að skapa sér sín eigin tækifæri í breyttu samfélagi.

Þegar kemur að þessum skýru reglum um úthlutun fjármuna, sem hæstv. ráðherra ræddi hér um, þá velti ég því fyrir mér hvort byrjunin á því væri til dæmis sú, ef við viljum hafa skýrt skilgreindar skyldur, að skilgreina skyldur sveitarfélaganna betur gagnvart því að veita fjárhagsaðstoðina, ekki bara heimildir þeirra til að skerða hana. Það liggur líka fyrir, eins og frumvarpið er orðað, að gefnar eru út leiðbeiningar og viðmiðunarfjárhæðir. Það er sagt að það sé talsvert um að misræmi sé á milli sveitarfélaga, um það (Forseti hringir.) hvernig þau ætli að stuðla að meira samræmi. En hér tel ég að grunnurinn þyrfti að vera talsvert samræmdari.