145. löggjafarþing — 74. fundur,  4. feb. 2016.

félagsþjónusta sveitarfélaga.

458. mál
[14:19]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Eygló Harðardóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er sammála hv. þingmanni um það að grunnur þyrfti að vera mun samræmdari varðandi þá þjónustu sem sveitarfélög eiga að veita þeim fjölskyldum sem eiga við erfiðleika að stríða. Fyrr í dag ræddum við skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna sem sneri að fátækt meðal barna. Þar hefur verið kallað eftir því að reglulega verði unnar greiningar á stöðu þeirra.

Ég hef líka verið að vega og meta það, þegar kemur að forgangsröðun fjármuna, hvort það skipti okkur meira máli að afla betri upplýsinga um þá þjónustu sem sveitarfélögin veita. Það hefur til dæmis komið í ljós, í vinnu velferðarnefndar varðandi þetta mál og í vinnu okkar varðandi hugsanlega stjórnsýslustofnun á sviði félagsþjónustunnar, að við höfum alls ekki yfirsýn yfir þá þjónustu og þær kröfur sem sveitarfélög gera til þeirra sem (Forseti hringir.) leita eftir aðstoð á erfiðum tímum í lífi sínu.

Ég tel mjög mikilvægt að við fáum betri yfirsýn um það hvaða reglur gilda um framfærsluaðstoðina, hvaða reglur gilda um það að komast á biðlista eftir félagslegu húsnæði, hvaða reglur gilda um þann stuðning sem sveitarfélögin veita þeim börnum sem koma frá fátækustu fjölskyldunum. Við höfum ekki yfirlit yfir þetta, alls ekki nægilega gott. Þegar við kölluðum eftir upplýsingum um það hversu mörg sveitarfélög væru með reglur sem sneru að skilyrðingum, þegar við fórum að vinna þetta frumvarp, kom í ljós að þær upplýsingar voru ekki til staðar í ráðuneytinu. (Forseti hringir.) Við urðum að kalla sérstaklega eftir þeim. Það leiddi hins vegar í ljós að nánast hvert einasta sveitarfélag er með einhvers konar reglur sem snúa að virkni þeirra sem á framfærsluaðstoð.

Eftir að við hættum að gefa út samræmdar leiðbeiningar varðandi upphaf framfærsluaðstoðarinnar þá höfum við fengið ábendingar um að munurinn á milli sveitarfélaganna hafi aukist. Þó að hér sé líka verið að huga að stjórnarskránni og sjálfræði sveitarfélaganna, þá skiptir máli að þessar reglur séu til staðar og að við birtum hvað hvert og eitt sveitarfélag er þó að gera.