félagsþjónusta sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég sé mig knúna til að koma í mína aðra ræðu, því miður get ég ekki komið í fleiri, en eins og fram hefur komið í þessari umræðu bæði fyrr og síðar þá er ég mjög á móti þessu frumvarpi. Ég tel það í anda frjálshyggjunnar, (Gripið fram í.) þetta er fullkomið virðingarleysi fyrir samábyrgð í samfélaginu og virðingu fyrir okkur öllum óháð því í hvaða aðstæðum við erum. Hér er gengið út frá því að manneskjurnar séu bara tannhjól í einhvers konar gangverki og það þurfi að tryggja að allir vinni í þágu atvinnulífsins og ef fólk sé ekki tuskað til þá veslist það upp í leti og ómennsku. Þetta er auðvitað algjörlega í andstöðu við allt sem varðar mannlega hegðun og skilning á aðstæðum fólks.
Nú er það svo varðandi fjárhagsaðstoð sveitarfélaga að fjöldi fólks nýtir sér fjárhagsaðstoð í mjög skamman tíma til að brúa ákveðið tímabil erfiðleika. Það er þakkarvert að ekki eru margir sem þurfa að vera á fjárhagsaðstoð um lengri tíma. En á síðustu árum hefur þessi hugmyndafræði rutt sér til rúms í Bretlandi, Svíþjóð, Danmörku og miklu fleiri löndum. Við tölum ekki lengur af hita um atvinnuöryggi fólks. Nei, við tölum um virkniúrræði fyrir þá sem grunur leikur á að séu of latir til þess að taka þátt í samfélaginu.
Sveitarfélögin hafa sýnt það faglega metnaðarleysi að byrja að nýta þessar skerðingar án þess að hafa til þess lagalegar heimildir. Hér er ráðherra að færa þeim þær heimildir. Hún er ekki að gæta réttinda borgaranna og verja þá, nei, hún er að ganga erinda sveitarfélaga sem vilja spara og sýna ekki faglegan metnað.
Hér í félagsþjónustulögunum á að heimila Vinnumálastofnun að meta hvort fólk sé vinnufært. Vinnumálastofnun er góð stofnun sem hefur staðið sig mjög vel í gegnum hrunið og allt það atvinnuleysi sem því fylgdi. En ég veit ekki til þess að Vinnumálastofnun sé álitin sérstakt vald varðandi mat á vinnufærni fólks. Eðlilegra væri að læknar, sálfræðingar og félagsráðgjafar tækju ákvörðun um það því að það eru félagssálfræðilegir þættir og líkamlegir þættir sem stjórna því hvort við erum vinnufær eða ekki.
Svo er það líka þannig að fjöldi fólks á fjárhagsaðstoð er sannarlega vinnufær og vill fúslega vinna, en þegar erfiðleikar eru langvarandi og maður er kominn til sveitarfélagsins til að fá aðstoð, þá hefur maður beðið marga ósigra á leiðinni. Það hefur margt á dunið í lífinu og fólk þarf aðstoð til þess að komast út úr þeim aðstæðum. Sú aðstoð felst að sjálfsögðu í hvatningu og trú á því að fólk sé fært um að vera virkur þátttakandi í samfélaginu. Þar erum við með fagstéttir. Við höfum fjöldann allan af félagsráðgjöfum sem vinna gríðarlega gott og faglegt starf hjá sveitarfélögunum. Það þarf að efla þá vinnu og setja fjármuni í það til þess að hjálpa fólki til sjálfshjálpar. Það er hin rétta leið til að mæta fólki í vanda. Það er sú leið og það er það viðmót sem ég mundi vilja mæta væri ég í þeirri aðstöðu að geta ekki um einhvern tíma (Forseti hringir.) framfleytt mér af eigin rammleik.