endurreisn heilbrigðiskerfisins.
Virðulegi forseti. Mig langar að beina fyrirspurn minni til hæstv. heilbrigðisráðherra. Hún er um mál málanna, þ.e. endurreisn heilbrigðiskerfisins.
Eins og ráðherra er vel kunnugt stendur yfir undirskriftasöfnun, sem nýjustu fregnir herma að sé orðin einhver sú stærsta ef ekki sú stærsta í Íslandssögunni, sem kennd hefur verið við Kára Stefánsson. Krafan í þeirri undirskriftasöfnun er markviss endurreisn heilbrigðiskerfisins með það markmið að útgjöld verði 11% af landsframleiðslu.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra. Ég heyrði ekki betur á orðum hans fyrir helgi en að hann væri í grundvallaratriðum sammála því uppleggi að heilbrigðiskerfið hafi verið að, hvað eigum við að segja, leka niður, það hafi verið að fjara undan því. Það eru kannski dálítið stór orð en að það hafi í það minnsta ekki byggst upp á þann hátt sem við helst vildum. Er hæstv. ráðherra ekki sammála því að kominn sé tími til þess að standa við þau orð og setja af stað markvissa vinnu í því að undirbúa hvernig eigi að endurreisa heilbrigðiskerfið?
Í því samhengi hlýtur önnur spurning sem ég beini að hæstv. ráðherra að vera hvort ekki þurfi markvisst að sýna vilja til þess að hefjast handa af krafti og standa við ákvörðun Alþingis um að endurreisa og fara af stað af krafti í endurbyggingu á nýjum Landspítala.