afnám verðtryggingar.
Virðulegur forseti. Það gengur, eins og kunnugt er, ljómandi vel að leysa haftamálin og húsnæðismálin eru í góðum farvegi, (Gripið fram í.) eins og hv. þingmaður þekkir líka, í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins og eru málin komin til umræðu í þinginu.
En það er óneitanlega sérkennilegt að heyra hv. þingmann Pírata þurfa að lesa upp ritstjórnarpistil manns á vefriti til þess að útskýra hvað píratar séu að meina. Það liggja sem sagt ekki fyrir skýringar pírata sjálfra á því hvað þeir eru að meina en leitað er í einhvern ritstjórnarpistil manns úti í bæ til þess að útskýra hvað þeir kunni hugsanlega að vera að meina með þessum tillögum sínum.
Það er líka rétt sem hv. þingmaður nefnir að bæði hægri og vinstri menn hafa talað fyrir hugmyndum um borgaralaun eða eitthvað svipað. En í báðum tilvikum er það fólk algjörlega á jaðrinum; öfgafrjálshyggjumenn hægra megin (Gripið fram í.) eða öfgaanarkistar vinstra megin mætast, (Gripið fram í.) því að þessi pólitíski hringur mætist auðvitað í einum punkti þar sem öfga hægri menn og öfga vinstri menn ná saman um útópískar hugmyndir sem eru algjörlega óraunhæfar, eins og hv. þingmaður á að geta sagt sér án þess að setja af stað þá rannsókn sem boðuð er. (BirgJ: Hvenær á þá að afnema verðtrygginguna?)