aukin framlög til heilbrigðismála.
Herra forseti. Ég vil sem nefndarmaður í velferðarnefnd spyrja hæstv. forsætisráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar allrar, út í það hvort viðbragða sé að vænta við ákalli þjóðarinnar um aukin fjárframlög til heilbrigðismála.
Nú er upplýst að í dag á þriðja tímanum fóru undirskriftir yfir 75 þúsund og er þetta þar með orðin viðamesta undirskriftasöfnun eða áskorun af þessu tagi í sögu lýðveldisins og skákar undirskriftum gegn hryðjuverkalögum Bretlands og flutningi Reykjavíkurflugvallar úr Vatnsmýri.
Ég vil því spyrja hæstv. forsætisráðherra:
Í fyrsta lagi. Hefur ríkisstjórn hans rætt þetta ákall frá þjóðinni um aukna fjármuni til heilbrigðismála?
Í öðru lagi. Er að vænta viðbragða? Þá á ég ekki við ritdeilur við aðstandendur eða upphafsmann söfnunarinnar heldur efnislegra viðbragða við þessu ákalli. Mun ríkisstjórnin á einhvern hátt bregðast efnislega við þessu? Sýna þessum tugum þúsunda að minnsta kosti þá virðingu að það verði brugðist efnislega við.
Er þá til skoðunar að taka upp fjárlög þessa árs og veita í fjáraukalögum aukna fjármuni til heilbrigðismála? Eða þyrfti úrlausnin að bíða fjárlaga næsta árs og þá tefjast um heilt ár?
Til viðbótar þessu sterka ákalli frá þjóðinni æpa fréttirnar þessa dagana á okkur þar sem ástandið á Landspítalanum er að sögn þannig að menn eru jafnvel farnir að skúra gólfin í bílageymslunum til að geta sett sjúklinga þangað á yfirfullum spítalanum.
Inflúensufaraldurinn fer í hönd og við fáum fréttir af því að sjúklingar eru fluttir fárveikir með sjúkraflugi landshorna á milli til þess að koma þeim út af Landspítalanum og til legu eftir aðgerðir, (Forseti hringir.) jafnvel í byggðarlögum fjarlægum þeim sem þeir eiga heima í.
Hæstv. forsætisráðherra, hvað er að frétta af þessum málum hjá hæstv. ríkisstjórn?