viðbrögð við undirskriftasöfnun.
Virðulegi forseti. Þegar 75 þús. Íslendingar kalla eftir úrbótum í heilbrigðismálum og lýsa með undirritun sinni yfir vanþóknun á vanrækslu í heilbrigðiskerfinu sem lýtur að fjölmörgum þáttum verða stjórnvöld að leggja við eyru. Þá skyldi maður líka ætla að ráðherra léti ekki dragast að leggja fyrir þingið tímasetta og raunhæfa áætlun um úrbætur í jafn stjórum og viðkvæmum málaflokki.
Hvernig ætlar ríkisstjórnin að mæta þessu ákalli? Hvaðan eiga fjármunir að koma þegar ljóst er að þeir fjármunir sem varið er til málsins á þessu ári munu engan veginn duga til? Ætlar ríkisstjórnin að endurskoða tekjuáform sín til þess að fjármagna heilbrigðiskerfið eða er stefnt að því að leysa málin með frekari einkavæðingu? Nú er verið að veita stóra afslætti á veiðigjöldum og afnema auðlegðarskatt. (Forseti hringir.) Kemur til greina að endurskoða þau áform? Það er algerlega ljóst að miðað við óbreytta tekjuáætlun horfum við ekki á endurreisn heilbrigðiskerfisins á þessu ári (Forseti hringir.) þó að fulltrúar ríkisstjórnarinnar leyfi sér að vísa til fjárlaga 2016 í því sambandi.