ný aflaregla í loðnu.
Virðuleg forseti. Það er auðvitað alltaf þannig að menn vilja að fiskimiðin séu sjálfbær og auðlindir almennt en að sama skapi vilja þeir veiða sem mest. Í því felst óhjákvæmilega ákveðin mótsögn.
Eftir því sem ég fæ best séð er nýja aflareglan bæði vísindalegri og ábyrgari en sú sem áður gilti. Ég átta mig á því að það getur vel verið að menn séu ósammála um ákveðna niðurstöðu en eftir stendur að allir eru sammála um það að loðnan er brigðull stofn og ekki hægt að komast að því með mikilli nákvæmni hversu mikið er óhætt að veiða. Í því felst eðli málsins samkvæmt að fara þarf varlega. Þegar um er að ræða stofnanir sem eru til þess að aðstoða okkur við að halda uppi sjálfbærum veiðum tel ég einsýnt að við þurfum að hlusta. Auðvitað er það samt vont fyrir ýmis byggðarlög og fyrirtæki sem stóla að miklu leyti á það að ákveðnar veiðar gangi upp þegar kemur í ljós að ekki má veiða eða ekki er hægt að veiða meira en raun ber vitni. Það er hluti af öðru sem við þurfum almennt að hafa í huga þegar kemur að því að stóla of mikið á ákveðinn iðnað og það er að við þurfum að geta tekist á við skakkaföll. Það er óháð því hvort við erum að breyta einhverju kerfi í samræmi við ráðleggingar annarra stofnana eða hreinlega vegna þess að náttúran bregst okkur, hún á það til að gera það.
Eins og kom fram í máli hæstv. ráðherra er ekki sjálfgefið að gamla kerfið hafi verið betra en það nýja. Með hliðsjón af þeim erfiðleikum sem hafa fylgt því að meta stofnun með einhverri vissu finnst mér mikilvægt að við stöldrum aðeins við. Við getum haft efasemdir en þá finnst mér mikilvægt að við byggjum efasemdirnar á vísindalegum rökum sem ég sé ekki, eins og staðan er núna, að falli í hendur gamla kerfisins.